„Fjölbreytileikinn sigraði í Bandaríkjunum,“ sagði Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, í ræðustól Alþingis í gær. Ræðan, þar sem hún taldi upp fyrstu múslimana, frumbyggjana og trans manneskjurnar sem náðu kjöri vestanhafs, hefur vakið hörð viðbrögð á samfélagsmiðlinum X.
Ása Berglind flutti ræðuna undir liðnum störf þingsins klukkan 13:49 að íslenskum tíma í gær, daginn eftir þingkosningarnar í Bandaríkjunum.
„Virðulegi forseti. Það var stórkostlegt að vakna í morgun og upplifa tilfinningu sem er ein af þeim allra bestu: vonina. Ég upplifði svo sterka von eftir að ömurlegri og mannskemmandi pólitík Trumps og félaga var hafnað í nýafstöðnum kosningum í Bandaríkjunum,“ sagði hún.
Taldi upp þá sem náðu kjöri
Í ræðunni fór Ása Berglind yfir þá sem hún sagði hafa brotið blað í kosningunum.
„Fyrsta konan úr hópi frumbyggja var kjörin í öldungadeildina, fyrsti músliminn kjörinn í öldungadeild Bandaríkjaþings, fyrsta svarta konan kjörin ríkisstjóri í Bandaríkjunum og sömuleiðis fyrsta konan úr hópi frumbyggja kjörin ríkisstjóri. Fyrsti opinberlega samkynhneigði karlmaðurinn var kjörinn í öldungadeildina,“ sagði hún og bætti við að fyrsta trans manneskjan hefði verið kjörin á ríkisþing Alabama og í Georgíu.
„Já, frú forseti. Fjölbreytileikinn sigraði í Bandaríkjunum. Fólkið valdi fjölbreytileika frekar en öfgafullar aðgerðir gagnvart mörgum kynslóðum innflytjenda,“ sagði Ása Berglind.
Hún lauk máli sínu á því að segja öfgahægribylgjuna ekki jafn vinsæla og margir héldu.
„Fólkið sér í gegnum þetta. Bandaríkjamenn eru búnir að sjá í gegnum málflutning öfgahægriafla og hafa nú hafnað honum með afgerandi hætti,“ sagði hún.
„Af hverju…“
Ása Berglind birti brot úr ræðunni á TikTok-síðu sinni og það myndskeið fór á flug á X í gærkvöldi. Einar Geir Þorsteinsson deildi því klukkan 20:16 og spurði hvaða erindi upptalningin ætti við Íslendinga.
„Afhverju taldi þessi þingmaður Samfylkingar að þessar upplýsingar ættu það mikið erindi við íslenskan almenning að hún ákvað að vekja athygli á þeim úr pontu á Alþingi Íslendinga?“ skrifaði Einar Geir.
Færslan hafði í morgun fengið yfir 120 „like“ og verið skoðuð rúmlega 4.200 sinnum.
„Fyrsti þingmaðurinn til að flytja krakkafréttir í pontu,“ skrifaði einn netverji í athugasemd við færsluna.
Sverrir, sem heldur úti streymi á netinu, deildi færslu Einars Geirs og sagði vinstrimenn sjálfa seka um það sem þeir saka aðra um.
„libbarnir flytja inn bandarísk menningarstríðsmál sem tengjast íslenskri pólitík ekki nokkurn skapaðan hlut alla daga og saka svo andstæðinga sína um hið sama,“ skrifaði Sverrir.
Fartölvan vakti athygli
Eva Þorsteinsdóttir gekk lengra. Hún svaraði Einari Geir klukkan 20:47 með einni setningu.
„Þessi kona á ekki heima á Alþingi Íslendinga,“ skrifaði Eva.
Tæpri klukkustund síðar birti hún skjáskot af Ásu Berglindi í ræðustól með fartölvu sína fyrir framan sig, merkta límmiðum.
„Er það vani hjá þingmönnum að stíga uppí pontu Alþingis íslendinga með skítuga fartölvu með límmiðum á? Eða eru gerð frávik fyrir Ásu Berglindi því hún er ‚spes‘ og ætti frekar heima á einhverjum öðrum vinnustað sem hugsanlega væri að einhverju leyti verndaður?“ skrifaði Eva.
Ekki voru allir á sama máli. „Þetta eru nú ansi merkilegar fréttir,“ skrifaði einn netverji undir færslu Einars Geirs og annar svaraði Evu með blótsyrðum.
Sigurður Ingi skaut á hana síðar sama dag
Ása Berglind var aftur í ræðustól síðar sama dag, þá í umræðu um heimavist við Fjölbrautaskóla Suðurlands. Þar fékk hún pillu frá Sigurði Inga Jóhannssyni, formanni Framsóknarflokksins og þingmanni Suðurkjördæmis.
„Þetta snýst náttúrlega fyrst og fremst um peninga og ef ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur er svona frábær, eins og ég veit að hv. þingmaður er mjög heilluð af, þá hlýtur hún að geta bara sett peninga í þetta því að það eru peningar sem þarf,“ sagði Sigurður Ingi.
Önnur umdeild ræða á tveimur vikum
Þetta er ekki í fyrsta sinn á skömmum tíma sem ræða Ásu Berglindar undir störfum þingsins vekur athygli. Þann 21. október gagnrýndi hún bæjarstjóra Ölfuss fyrir ummæli um múslima og minnti í lok ræðunnar á 233. grein almennra hegningarlaga.
„Að lokum vil ég minna á að skv. 233. gr. almennra hegningarlaga varðar það sektum eða fangelsi allt að tveimur árum að hæðast að, rógbera, smána eða ógna manni eða hópi manna opinberlega með ummælum, myndum, táknum eða annarri tjáningu vegna tiltekinna persónuþátta. Vöndum okkur,“ sagði hún þá.