Það vakti athygli og óhug sumarið 2025 þegar greint var frá því að hópur vopnaðra og grímuklæddra manna hefði setið fyrir lögreglumanni við heimili hans. Þetta var í þriðja sinn á innan við tveimur árum sem lögreglumönnum var ógnað á heimilum þeirra.
Forsaga málsins er afskipti lögreglumannsins af þekktum afbrotamanni vegna umferðarlagabrota í byrjun árs 2025. Lögreglu barst síðar ábending um að ljósmynd af lögreglumanninum væri í dreifingu meðal undirheimamanna með ósk um nafn hans og heimilisfang. Nokkrum dögum síðar komu fimm menn að heimili lögreglumannsins, vopnaðir og með lambhúshettur.
Hélt að hann hefði fengið vitlausan gagnapakka
Lögreglumaðurinn, sem kemur fram undir nafnleynd í viðtali við Kveik í kvöld, segir fjölskylduna hafa þurft að yfirgefa heimilið strax.
„Við þurftum að flytja strax út. Við fluttum úr íbúðinni og fórum í húsnæði sem yfirmenn mínir fundu fyrir okkur og þurftum að dvelja þar um tíma.“
Í júní síðastliðnum, sléttu ári eftir að rannsókn hófst, tilkynnti héraðssaksóknari að málið hefði verið fellt niður þar sem það þætti ekki líklegt til sakfellingar.
„Þegar ég las yfir gögnin hélt ég að ég hefði bara fengið vitlausan gagnapakka, að ég hefði fengið gögnin sem voru til eftir fyrstu vikuna. Ég skildi ekki af hverju það var ekki búið að vinna neitt í málinu nema yfirheyra þá sem voru handteknir,“ segir lögreglumaðurinn.
Símunum skilað óskoðuðum
Lögreglumaðurinn kærði niðurfellinguna til ríkissaksóknara, sem gagnrýndi rannsókn héraðssaksóknara harðlega í úrskurði í lok október. Meðal annars voru farsímar meints höfuðpaurs haldlagðir í upphafi rannsóknar en þeim skilað mánuði síðar án þess að innihald þeirra væri rannsakað.
„Þessi annmarki á rannsókn málsins er aðfinnsluverður, en ljóst er að þar sem búið er að afhenda farsímana verður ekki úr honum bætt,“ segir í úrskurði ríkissaksóknara.
Lögreglumaðurinn segist hafa verið hissa á niðurstöðu héraðssaksóknara.
„Þótt reynsla mín af héraðssaksóknara hafi verið mjög slæm var ég mjög hissa að fá þetta bréf og fá að vita að það yrði ekki ákært fyrir neitt. Ekki einu sinni fyrir húsbrot eða sektað fyrir vopnalagabrot.“
Ríkissaksóknari hefur falið héraðssaksóknara að ljúka rannsókn á meintum vopnalaga- og húsbrotum fimmmenninganna.
Fjallað verður ítarlega um rannsóknir brota gegn lögreglumönnum í Kveik í kvöld. Þátturinn er á dagskrá klukkan 20.15.