„Mér fannst þetta bara fáránlegt. Ég skildi ekki hvaða erindi þessi frétt átti við okkur. Svo auðvitað komu fréttir um að þetta hafi verið alvarlegra en eitthvað kossaflens,“ segir Steingerður Steinarsdóttir blaðamaður og ritstjóri um fyrstu fréttina um kossamálið svokallaða í Hagaskóla sem skók samfélagið í síðustu viku. Steingerður ræddi um málið í Rauða borðinu með Birni Þorlákssyni á Samstöðinni, þar byrjaði Björn á að fara yfir málið. „Þetta byrjar sem einhver furðuleg fyrirsögn um kossaflens en enginn skilur hvað er þarna í gangi, reyndist svo hafa verið kynlíf.“
Skiptar skoðanir um Hagaskólamálið – „Er þetta framtíðin hjá okkur?“