„Mín upplifun er að þetta sé svolítið rangur fréttaflutningur um Mjóddina. Hópamyndun ungmenna sem kemur fram í fréttunum á ekki heima hér inni í Mjóddinni. Þetta tengist Strætó, sem er önnur bygging við hliðina á.“
Þetta segir Guðrún Erla Sigurðardóttir, eigandi Efnalaugarinnar Bjargar í Mjóddinni í Reykjavík.
Undanfarin misseri hafa hópamyndanir og líkamsárásir í Mjódd oft verið til umfjöllunar í fjölmiðlum. Lögregla hefur haft tvær líkamsárásir hóps ungmenna til rannsóknar á þessu ári.
Guðrún segir að fréttaflutningurinn hafi tvímælalaust áhrif á viðskiptavini og fæli þá frá fyrirtækjum sem starfa í verslunarkjarnanum.
„Fólk þorir eflaust ekki að koma hingað út af þessum fréttaflutningi sem á sér stað þarna hinum megin en þetta er algjörlega óviðkomandi okkur. [...] Við verðum aldrei vör við þetta.“