Lögreglan í París rannsakar yfir 100 ásakanir um illa meðferð, líkamlegt ofbeldi og nauðganir á börnum allt niður í þriggja ára aldur í frönskum grunn- og leikskólum. Grunur leikur á að skólaliðar hafi beitt börnin ofbeldi í hádegishléum, hvíldartímum og eftir skóla.
The Guardian greinir frá því að rannsóknin nái yfir 84 leikskóla, 20 grunnskóla og 10 dagvistunarheimili. Hópar foreldra segja að þeir hafi barist fyrir því árum saman að ásakanir yrðu teknar alvarlega. Foreldrar segja að mistök hafi verið gerð í ráðningarferli skólaliða og eftirliti með þeim, sem hafi gert þeim kleift að halda áfram misnotkuninni.
Skólaliðarnir hafa umsjón með börnunum í hléum, hvíldartíma þeirra og í frístund og verja jafnvel lengri tíma með þeim en kennarar. Þeir hafa ekki fengið sérstaka þjálfun eða menntun til starfsins og eru ekki ráðnir af skólunum eða menntamálaráðuneyti heldur af borgarstjórnum eða sveitarstjórnum, oft til skemmri tíma í senn.
20 milljónir evra í aukið eftirlit
Emmanuel Grégoire, borgarstjóri Parísar, ætlar að setja 20 milljónir evra í það að bæta eftirlitskerfi með skólaliðum. Hann hefur einnig skipað borgarahóp sem á að greina hvort þessar ásakanir hafi verið afgreiddar sem stök mál eða hvort kerfisbundin þöggun hafi átt sér stað um þessi mál.
Foreldrahópurinn SOS Périscolaire segir að misnotkunarmálin séu kerfisbundin og séu um allt Frakkland. Eftirlitskerfin hafi ekki bara brugðist á borgarstjórnarstiginu heldur einnig hjá ríkinu.