Donald Tusk forsætisráðherra Póllands greindi frá handtökunni í færslu á X og hrósaði lögreglunni fyrir skjót og góð viðbrögð.
Greint var frá því í dag að pólska lögreglan hefði fengið upplýsingar um mögulegar tilraunir til að ráða Tusk og varnarmálaráðherra Póllands, Wladyslaw Kosiniak-Kamysz, af dögum.
Ekki hefur verið gefið upp hvers konar árásir voru í bígerð, né hvenær og hvar átti að fremja þær.
Lögregluyfirvöld í Póllandi hafa verið á hæsta viðvörunarstigi eftir hnífaárásir í skólum og víðar undanfarið. Pólverjar eru miklir bandamenn Úkraínu og hafa varað við skemmdarverkum og fjölþáttaógnum Rússa í Póllandi en stjórnvöld í Moskvu hafna því að bera ábyrgð á þeim.
Innanríkisráðherra Póllands, Marcin Kierwinski, segir of snemmt að segja til um hvort maðurinn sem var handtekinn hafi tengsl við erlend ríki. Svo virðist sem hann tengist frekar öfgahópum og hafi myndað tengsl við róttæka einstaklinga í gegnum netið.