Einn maður var handtekinn fyrir ofbeldi í heimahúsi í dag, í umdæmi lögreglustöðvar 3, sem er Breiðholt og Kópavogur. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu en málið er í rannsókn. Í umdæmi lögreglustöðvar 1 var tilkynnt um víðáttuölvaðan mann sem gat ekki valdið sér og svaf ölvunarsvefni utandyra. Komið var með hann á lögreglustöð og þar fundust upplýsingar um manninn og hvar hann ætti heima. Kom í ljós að hann bjó einungis tveimur húsum frá þar sem hann fannst og var honum því ekið aftur heim þar sem fjölskyldumeðlimur tók á móti honum.
Ósjálfbjarga vegna ölvunar