Í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands segir að núverandi veður á landinu sé vegna lægðar sem fikri sig nú nær landi og stefnir lægðarmiðjan norður með vesturströndinni og þaðan vestur að Grænlandi um hádegi á morgun. Það er þessi lægð sem veldur austan og suðaustan hvassviðri eða stormi með rigningu víða á landinu fram á nótt. Hiti þrjú til átta stig.
Á Austurlandi fellur gul veðurviðvörun úr gildi klukkan átta, á Norðurlandi eystra klukkan níu og á miðhálendinu klukkan tíu en á Ströndum og norðurlandiu vestra klukkan ellefu. Á Breiðafirði tekur gul viðvörun gildi vegna sunnan hvassviðris eða storms klukkan átta og stendur yfir til þrjú, sömuleiðis tekur gul veðurviðvörun gildi á Vestfjörðum klukkan tíu og er í gildi til þrjú.
Segir Veðurstofan að Í nótt þegar lægðarmiðjan er komin vestur af landinu snúist í sunnan átt og rigningu með köflum. Dregur svo úr vindi í fyrramálið þegar hún fjarlægist og dregur úr rigningu. Suðlæg átt 8-15 metrar á sekúndu eftir hádegi á morgun og kólnar með skúrum eða slydduéljum, en úrkomulítið norðantil.
Smálægð nálgast svo landið á laugardag og veldur allhvassri suðaustanátt og rigningu eða slyddu, en hægari vindur vestantil. Útlit fyrir suðlæga átt á sunnudag með skúrum eða slydduéljum, en úrkomuminna norðanlands. Fremur svalt í veðri um helgina.
Veðurhorfur á landinu:
Á laugardag:
Austlæg eða breytileg átt 5-13 m/s og víða slydda eða snjókoma, en úrkomuminna norðanlands. Bætir í vind austantil síðdegis og hlýnar með rigningu eða slyddu, allhvasst eða hvasst þar með kvöldinu, en annars hægari. Hiti um frostmark, en að 7 stigum austantil seinnipartinn.
Á sunnudag:
Suðaustlæg átt 3-10 m/s, en strekkngur norðvestanlands fram eftir degi. Snjókoma eða slydda sunnan- og vestantil, en úrkomuminna norðanlands. Kólnar heldur.
Á mánudag:
Fremur hæg breytileg átt og bjart með köflum, en dálítil él með suður- og vesturströndinni. Bætir heldur í vind við suðausturströndina með kvöldinu. Frost 0 til 7 stig.
Á þriðjudag:
Norðlæg eða breytileg átt og víða rigning eða slydda, en bætir heldur í vind síðdegis, einkum norðantil. Hiti um og undir frostmarki.
Á miðvikudag:
Útlit fyrir vestlæga átt með slyddu eða snjókomu, einkum norðanlands. Hiti breytist lítið.