Allt tiltækt lið Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins var ræst út vegna tilkynningar um eld í iðnaðarhúsi við Ægisíðu í Reykjavík skömmu fyrir klukkan sjö. Þegar fyrsti bíll kom á staðinn um klukkan 7 var viðbragð afturkallað því eldurinn reyndist bæði lítill og staðbundinn.
Guðmundur Hreinsson varðstjóri segir eld hafa kviknað í smá dóti sem var dregið út fyrir húsið og slökkt í.