Þá kemur fram að tilkynnt hafi verið um reiðhjólaslys þar sem reiðhjólamaður féll í jörðina. Reiðhjólamaðurinn var samkvæmt dagbók fluttur á bráðamóttöku til skoðunar.
Óskað var eftir aðstoð lögreglu í Kópavogi/Breiðholti þegar einstaklingur neitaði að yfirgefa verslunarmiðstöð. Í dagbók segir að hann hafi yfirgefið svæðið eftir samtal við lögreglu.
Í Hafnarfirði var tilkynnt um þjófnað úr verslun en að sá grunaði sé laus eftir skýrslutöku. Í dagbók kemur einnig fram að þrír hafi gist í fangaklefa í nótt og að bókuð hafi verið 47 mál í kerfi lögreglu frá 17 til fimm í morgun. Auk þessara verkefna sinnti lögregla ýmsum verkefnum tengdum umferðareftirliti.