Forstjóri Landhelgisgæslunnar og flugstjóri hjá Landhelgisgæslunni sem fór í útkallið sögðu báðir í gær frá því að verkefnið hefði verið afar krefjandi og að það hefði verið betra að hafa aðra þyrlu. Hífa þurfti sautján manns í þyrluna og greindi flugstjórinn frá því að þau hefðu þurft að hverfa frá hluta mannanna í sjónum til að létta á þyrlunni með því að brenna eldsneyti.
Kristrún var til viðtals í Kastljósi á RÚV í gær og sagði þar að fjármögnun fjórðu þyrlunnar yrði lokið á yfirstandandi kjörtímabili og að fjármagn til verkefnisins yrði tryggt í komandi fjármálaáætlun.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra heitir því að fjármagn fyrir fjórðu björgunarþyrlu Landhelgisgæslunnar verði klárað á yfirstandandi kjörtímabili. Undirbúningi verði flýtt á næstu vikum og fjármagn til verkefnisins tryggt í komandi fjármálaáætlun. Fjármálaáætlun verður kynnt í apríl. Kjörtímabilinu lýkur 2028.
„Það var alltaf markmiðið okkar á þessu kjörtímabili að klára það að fara af stað með þetta ferli, ákveða þetta með fjórðu þyrluna, þessu verður flýtt eins og kostur er á næstu vikum og við munum finna lendingu í þessu máli,“ sagði Kristrún í Kastljósi í gær.