Breska ríkisútvarpið ræðir gang stríðsins við forsetann. Selenskí segir Bandaríkin ekki þrýsta nægilega mikið á Rússa í friðarviðræðum og segir skrítið að Trump hafi birt mynd af sér þar sem hann fellst í faðma við Pútín.
„Auðvitað er þetta val forseta Bandaríkjanna en.....þetta er skrítið. Hann er árásarmaður og morðingi....hann getur ekki verið vinur. Hann bara getur það ekki,“ segir Selenskí. Hann segir þetta vera eins og að segjast vera vinur Adolfs Hitlers á meðan seinni heimsstyrjöldinni stóð.
Breska ríkisútvarpið lætur þess getið að Selenskí hafi hingað til verið var um sig þegar hann hafi rætt samband sitt við Bandaríkjaforseta. Ekki síst eftir nokkuð átamikinn fund þeirra í Hvíta húsinu í janúar 2025 þegar Trump var nýtekinn aftur við.
Selenskí segir í viðtalinu að árásum Rússa á Úkraínu hafi fjölgað. Hann segir að aldrei hafi eins margir almennir borgarar landsins fallið í átökunum. Rússar skjóti eldflaugum á orkuver landsins og beiti drónum gegn borgurum. Hann hvetur Bandaríkin til að standa undir nafni sínu sem voldugasta ríki veraldar.
Bandarísk stjórnvöld hafa undir Trump ítrekað fullyrt að þau séu hlutlaus í átökunum. „Þegar þú reynir að vera hlutlaus við árásarmann...þá þýðir það að þú styður fórnarlömbin og þú styður líka árásarmanninn. Það er ekki réttlætanlegt,“ segir forseti Úkraínu um málið.
Þá varði Selenskí árás Úkraínumanna gegn rússnesku herskipi þar sem það lá í höfn í Líbíu í Afríku. Gieorgia Meloni forsætisráðherra Ítalíu hefur gagnrýnt árásina og sagst óttast að stríðið muni dreifast til Miðjarðarhafsins. Selenskí segir Úkraínumenn alltaf eiga í samskiptum við bandamenn sína fyrir slíkar árásir.