Dómsmálaráðherra hefur lagt fram frumvarp til að aðlaga hin ýmsu lög að sameiningu sýslumannsembætta um áramót. Við breytinguna verður landið eitt sýslumannsumdæmi.
Margar breytingarnar eru minniháttar, svo sem að breyta orðalagi úr fleirtölu í eintölu. Enda verður aðeins einn sýslumaður á landinu í stað níu áður. Þá þarf að fella á brott ákvæði um hvaða sýslumaður eigi að taka við tilteknu máli, til dæmis út frá lögheimili, búsetu eða staðsetningu eignar.
Sú var hefðin að sýslumenn báru sérstaka starfstitla er þeir framkvæmdu tiltekin verkefni. Að mati ráðuneytisins eru þessir starfstitlar úreltir og verður þeim skipt út fyrir sýslumann. Dæmi um slíka titla eru könnunarmaður, yfirlögráðandi og þinglýsingarstjóri. Hefðarsinnar geta þó huggað sig við það að starfstitillinn lögbókandi (notarius publicus) verður ekki felldur á brott enda hefur það hugtak sjálfstæða og réttarlega merkingu.
Þá verða umboðsmenn felldir brott úr lögum, en í einstaka lögum hefur sýslumaður heimild til að fela sérstökum umboðsmanni verkefni. Þetta á til dæmis við um skipti á dánarbúum. Segir í greinargerðinni að þessum ákvæðum hafi ekki verið beitt í langan tíma, enda leifar af því þegar sýslumenn höfðu umboðsmenn í öðrum héruðum á tímum þar sem byggð var dreifðari og samgöngur verri.
Hreppsstjórnarnir halda sér
Hins vegar er hreppstjórinn ekki að fara neitt. Í bili að minnsta kosti. Í lögum eru hreppstjórar umboðsmenn sýslumanns, hver í sínum hreppi, en við gerð þessa frumvarps þótti ekki tilefni til að endurskoða þá löggjöf sem vísar til hreppstjóra. Þótt hreppstjóra sé enn að finna í lögum hefur staðan sem slík verið aflögð í íslenskri stjórnsýslu.
Kristín Þórðardóttir var í sumar skipuð sýslumaður og verður því yfir hinu nýja embætti. Starfsstöðvar verða óbreyttar en starfsfólk embættanna færist yfir til hins nýja embættis.