Fjarskiptastofnun Bandaríkjanna hefur veitt SpaceX leyfi til að skjóta milljón gervihnöttum á sporbaug um jörðu. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkt leyfi er veitt. Heildarfjöldi gervihnatta í geimnum nú er tæplega 20 þúsund. Markmið SpaceX er að koma upp gagnaverum í geimnum til að knýja gervigreind. Verkefnið hefur fengið heitið Starmind.
SpaceX, sem er í eigu auðkýfingsins Elons Musk, hyggst nýta sólarorku til að knýja gervihnettina. Þeir munu síðan vinna úr gögnum fyrir gervigreind og senda niðurstöðuna aftur til jarðar. Ekki liggur fyrir hvort milljón gervihnöttum verði í raun skotið á loft eða hvort SpaceX hafi sótt um leyfi fyrir fleiri gervihnöttum en fyrirtækið hyggst nota.
Andstaða við uppbyggingu gagnavera á jörðu niðri hefur aukist statt og stöðugt að undanförnu, þar á meðal í Bandaríkjunum.
Google og Blue Origin áhugasöm
SpaceX segir að sporbaugsgagnaver séu bæði kostnaðarminnsta og orkuminnsta leiðin til að mæta sívaxandi þörf fyrir aukna vinnslugetu til að geta knúið þróun gervigreindar.
Bæði Google og Blue Origin, geimtæknifyrirtæki Jeffs Bezos, eru þegar farin að renna hýru auga til mögulegrar uppbyggingar gagnavera í geimnum.
Samkvæmt leyfi FCC þarf að hefja uppsetningu gervihnattanna í síðasta lagi í nóvember 2033. Þá þarf SpaceX að hafa komið 10% þeirra á loft fyrir nóvember 2035 og 50% fyrir nóvember 2038. Fyrirtækið hefur þegar lýst því yfir að fyrsta Starmind-gervihnettinum verði skotið upp strax á næsta ári.
Rétt eins og Starlink-kerfi SpaceX sem veitir háhraðanettengingu í gegnum meira en tíu þúsund gervihnetti munu Starmind-gervihnettirnir vera á lágri braut um jörðu, eða í um 500 til 2000 kílómetra hæð. Gervihnettir Starmind munu tengjast Starlink-kerfinu til að senda gervigreindargögnin til jarðar.
Gagnrýnis- og efasemdarraddir
Áformin hafa verið gagnrýnd og jafnvel vakið efasemdir. Stjörnufræðingar í Bandaríkjunum lýsa yfir miklum vonbrigðum með ákvörðun FCC. Þeir segja að verði áform SpaceX að veruleika muni það grafa verulega undan áratugalangri opinberrum fjárfestingum í innviðum fyrir stjörnufræðirannsóknir.
Þá muni þau skerða verulega möguleika bæði stjörnufræðinga og almennings til að rannsaka næturhimininn og njóta hans. Ljóst sé að svo margir gervihnettir svo nálægt jörðu muni sjást sem bjartir punktar á næturhimninum í langan tíma.
Heildarfjöldi gervihnatta, virkra og óvirkra, í geimnum nú er talinn vera tæplega 20 þúsund, þar af rúmlega 11 þúsund Starlink-gervihnettir frá SpaceX.
Einnig hefur verið bent á að enn þá sé óvíst hvort tæknin virki í raun og hvort skynsamleg sé að leggjast í svo stórar framkvæmd þegar það liggur ekki fyrir. Enn eigi eftir að sýna fram á að tæknin geti annað því gríðarlega magni gagna sem líklegt er að þyrfti að flytja fram og til baka.