Fjölmennt lið viðbragðsaðila frá lögreglunni á Suðurnesjum, Brunavörnum Suðurnesja og Slökkviliði Grindavíkur hafi farið á vettvang. Rannsóknardeild embættisins vann að vettvangsrannsókn í samstarfi við tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Rannsóknarnefnd samgönguslysa kom einnig á vettvang. Opnað var fyrir umferð á ný þegar störfum rannsóknaraðila lauk.
Suðurstrandarvegur var einnig lokaður milli Þorlákshafnar og Grindavíkur en hefur einnig verið opnaður.
Lokað um Fagradal
Vegurinn um Fagradal er nú lokaður vegna skriðu við Biskupshlaup í Grænafelli og vegna hættu á frekari skriðuföllum. Einnig er ófært um Vatnsskarð eystra vegna vinds, segir á vef Vegagerðarinnar umferdin.is.
Þá eru vegfarendur beðnir um að aka varlega á vegum landsins, en vegna veðuraðstæðna hafa holur myndast mjög víða á vegum.