Hvassviðri og úrkoma fylgja víðáttumikilli lægð vestur af landinu. Lægðamiðjan er þó tekin að fjarlægjast landið á leið sinni vestur í átt að Grænlandi og dregur smám saman úr vindi þegar líður á daginn, nema á Vestfjörðum þar sem blæs áfram fram eftir degi. Síðasta gula viðvörunin fellur úr gildi klukkan þrjú síðdegis. Nánar í pistli veðurfræðings á Veðurstofu Íslands:
Víðáttumikil lægð er nú stödd vestur af landinu með tilheyrandi hvassviðri og úrkomu, en gular viðvaranir hafa verið í gildi víða í nótt eða fara að taka gildi nú í morgunsárið. Flestar detta þær þó út ein af annari með morgninum þar sem lægðamiðjan er tekin að fjarlægjast landið á leið sinni vestur í átt að Grænlandi.
Dregur þá smám saman úr vindi þó það blási áfram á Vestfjörðum eitthvað fram eftir degi. Rigning með köflum, slydduél eða él verður sunnan- og vestanlands í dag, en úrkomulítið og léttskýjað norðanlands, einkum síðdegis.
Á morgun verður fremur hægur vindur víðast hvar og skúrir eða slydduél, en eftir hádegi fáum við skil til okkar frá smálægð sem veldur allhvössum eða hvössum vindi austan- og síðar norðanlands. Sú lægð færir okkur fremur hlýtt loft með rigningu við Suður- og Austurströndina, en slyddu eða snjókomu inn til landsins og svo vestanlands síðdegis.
Lægðin gengur yfir landið annað kvöld og aðfaranótt sunnudags, og um hádegi á sunnudag er útlit fyrir fremur hægan austlægan eða breytilegan vind og svalara veður með dálitlum skúrum eða slydduéljum víða með ströndinni.