Tveir bílar eru óökufærir eftir árekstur á gatnamótum Glerárgötu og Strandgötu á Akureyri skömmu fyrir klukkan átta. Engin slys urðu á fólki.
Talsverðar umferðartafir voru á meðan viðbragðsaðlar unnu á vettvangi en aðgerðum er lokið, að sögn Jóns Valdimarssonar, varðstjóra hjá lögreglunni.