Aðalsteinn Kjartansson hefur verið ráðinn ritstjóri Heimildarinnar af stjórn Sameinaða útgáfufélagsins. Greint er frá þessu í Heimildinni í dag. Þar segir einnig að Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir stígur til hliðar úr stóli ritstjóra og fer í tólf mánaða veikindaleyfi.Aðalsteinn hóf störf í blaðamennsku árið 2010 á DV og hefur einnig starfað á Stundinni, RÚV og Reykjavík Media. Hann hlaut verðlaun Blaðamannafélagsins árið 2019 fyrir rannsóknarblaðamennsku og hlaut svo Blaðamannaverðlaun ársins fyrir árið 2021.
Aðalsteinn ráðinn ritstjóri Heimildarinnar