Karl Eðvaldsson er skrifstofustjóri borgarlandsins í Reykjavíkurborg sem hefur verið að kynna sér þessa tækni og hvernig hún gæti nýst við vetrarþjónustuna.
Hann kynnti hugmyndina á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í vikunni. Þar kom fram að með því að setja upp hitamæla og hitamyndavélar á vissum stöðum í borginni væri hægt að spá fyrir um hálkuna áður en hún myndast. Ef fram fer sem horfir þyrfti jafnvel ekki manneskja að koma nálægt því verki. Gervigreindin yrði einfaldlega notuð til að lesa úr stöðu hitamælanna og hitamyndavélanna og myndi þá ræsa út vélmenni sem færu og dreifðu salti á stígana svo þeir yrðu greiðfærir gangandi- og hjólandi vegfarendum.
Vélmenni sinna nú þegar hluta af grasslætti á borgarlandinu. Vélmennin eru þá með heimahöfn í hleðslustöðvum og fara út með reglubundnum hætti og slá afmarkað svæði. Sama hugmynd myndi gilda um vélmenni sem myndu sinna vetrarþjónustu á stígum borgarinnar.
Hann segir að erfitt geti verið að spá fyrir um hálku. Dæmi séu um að ekki hafi verið frost í veðurkortunum en á sumum stöðum geti hitastigið farið undir frostmark. Með hitamælunum væri hægt að tryggja að stígarnir yrðu hálkuvarðir áður en þörfin myndast.
Hann áætlar að það gæti tekið um tvö, þrjú ár að koma þessum mælibúnaði upp. Í dag notast vetrarþjónustan við ChatGPT og Copilot til að bera saman íslenskar og erlendar veðurspár til að fá út ákveðið meðaltal svo hægt sé að fá áreiðanlegri spár.
Karl segist hafa rætt við samgönguverkfræðing hjá Eflu um hvort borginni væri heimilt að prófa vélmenni við hálkuvarnir á göngu- og hjólastígum. Að sögn Karls taldi verkfræðingurinn að breyta þyrfti reglugerð áður en slík tilraun gæti farið fram.
Kalla út allar vélar sex til sjö daga á ári
Í kynningunni sem borgarfulltrúar fengu í vikunni á vetrarþjónustunni var þó ekki aðeins fjallað um hugsanlega aðkomu vélmenna og gervigreindar, heldur var einnig farið yfir hvað vetrarþjónustan kostar borgarbúa.
Karl segir að yfir árið séu um sex til sjö dagar í Reykjavík snjóþungir, en þar er átt við þegar um tíu til tuttugu sentímetrar af snjó falla. Þá þarf að kalla út allar tiltækar vélar en slíkt útkall kostar um 26 milljónir króna.
Í fyrra mældist mesta snjódýpt í október frá upphafi mælinga árið 1921. Það var þegar snjódýptin mældist fjörutíu sentímetrar að morgni 29. október.
„Þetta margborgar sig,“ segir Karl. Það yrði samfélaginu mun dýrara ef fólk kæmist ekki til vinnu eða neyðarbílar sætu fastir í snjónum.
Þann 11. nóvember átti borgin um 160 milljónir króna eftir af fjárheimild ársins til vetrarþjónustu. Þá hafði hún varið um 1,1 milljarði króna til málaflokksins. „Það fer allt eftir því hvernig desember verður,“ segir Karl um það hvort heimildin dugi út árið.
Samningsbrot að mæta ekki í útkall
Vetrarþjónustan tók stakkaskiptum eftir að snjó kyngdi niður fyrir jólin árið. Þá var mokstur á öllum götum borgarinnar á hendi eins aðalverktaka. Sumir þeirra hafi á þeim tíma verið uppteknir við önnur verk og þegar á þurfti að halda reyndist erfitt að fá nógu margar vélar til að sinna verkinu með skömmum fyrirvara.
„Núna erum við með nokkra verktaka, tvo verktaka á stofn- og tengibrautum og þrjá verktaka í húsagötum,“ segir Karl. Borgin greiðir þeim sérstaklega fyrir að hafa mannskap og tæki til taks. „Ef þeir mæta ekki er það samningsbrot. Þetta er munurinn frá því sem var.“