Umræða um að Landhelgisgæslan þyrfti að hafa fjórar björgunarþyrlur til umráða hófst fyrir tuttugu árum þegar varnarliðið hvarf af landi brott - og með því öflugar björgunarþyrlur sem oft höfðu verið notaðar við sjóbjörgun. Og um tíma voru Gæsluþyrlurnar fjórar - frá 2006 til 2008 en síðan hafa þær verið þrjár. Þyrlurnar eru allar af gerðinni Airbus Super Puma - og allar eru þær teknar til leigu.
Þyrlur eru viðhaldsfrekar og þegar Jökull ÞH sökk um 60 sjómílum út af Austfjörðum miðvikudaginn 25. nóvember sl. var bara ein flughæf, TF-GRÓ. Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, sagði á blaðamannafundi í morguninn eftir slysið að samkvæmt reglum Gæslunnar ætti ekki að fljúga þyrlu lengra út frá landi en 20 sjómílur án þess að hafa bakköpp, eins og hann orðaði það, það er að segja að önnur þyrla væri til fylgdar. Áhöfnin hefði ákveðið að víkja frá öryggisreglum og halda að slysstað þar sem þau náðu öllum 17 skipverjum úr sjónum.
Ætla að klára málið á þessu kjörtímabili
Á blaðamannafundinum benti Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra á að allt frá upphafi kjörtímabilsins hefði verið til skoðunar að bæta fjórðu þyrlunni við og þeirri vinnu yrði flýtt eins og kostur er. Í Kastljósi sama dag sagði Kristrún að hennar ríkisstjórn myndi klára málið og finna lendingu.
„Við munum finna þessu fjármagn í komandi fjármálaáætlun og við munum klára málið eins og við ætluðum að gera. Ég vil ekki að það líði hér 20 ár án þess að aðstæður breytist og ég heiti því að við munum klára þetta mál á þessu kjörtímabili,“ sagði hún.
Kristrún hefur áður sagt, á fundi á Akureyri í fyrravor, sem Akureyri.net sagði frá, að staðsetja ætti eina af þyrlum Gæslunnar þar í bæ en ekkert kom fram um hvenær.
Það hefur þó verið til skoðunar í töluverðan tíma að hafa þyrlu utan höfuðborgarsvæðisins.
Árlegur kostnaður um 1,1 milljarður á ári
Í minnisblaði sem tekið var saman í dómsmálaráðuneytinu í desember 2024 kemur fram að samkvæmt mati Gæslunnar myndi kostnaður við eina þyrlu utan höfuðborgarsvæðisins nema um 1,5 milljörðum á ári. Þá gerði Gæslan ráð fyrir að bæta þyrfti við þremur þyrluáhöfnum, við þær sex sem starfandi voru þá og nú. Í þessu sama minnisblaði kemur líka fram að Gæslan hafi um árabil verið í rekstrarvanda.
Í svari dómsmálaráðuneytisins til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis frá því í júní á þessu ári, vegna fyrirspurnar um kostnað við fjórðu þyrluna á Akureyri, er á hinn bóginn miðað við að bæta við einni áhöfn en ekki þremur. Samkvæmt upplýsingum Spegilsins er ástæðan sú að 2024 var miðað við að áhafnir yrði búsettar á Akureyri en nú sé miðað við bakvaktir.
Í svarinu kemur fram að samkvæmt bráðabirgðaútreikningum Gæslunnar yrði fastur rekstrarkostnaður þyrlu og starfsstöðvar á Akureyri 1,1 milljarður á ári, en ekki 1,5. Til viðbótar komi einskiptiskostnaður upp á 600 milljónir vegna flugskýlis, þjálfunar og fleira.
Gæslan telur að að það tæki eitt til þrjú ár að leigja nýja þyrlu.
Ljóst er að fjórða þyrlan bætti viðbragðsgetu Gæslunnar verulega. Þá mætti gera ráð fyrir að tvær þyrlur væru til taks 95-98% ársins, en ekki 60% þess eins og nú. Það yrði sem sagt aðeins ein þyrla til taks í mesta lagi 10 daga, en ekki í rúmlega 140 daga.
Verstu aðstæður sem hægt er að ímynda sér
Spegillinn ræddi við Aríel Pétursson, formann Sjómannadagsráðs, um sjóslysið og björgun skipverjanna af Jökli. Aríel var til sjós á árunum 2006-2021.
„Þetta eru eiginlega verstu aðstæður sem hægt var að ímynda sér,“ sagði hann. Þarna hafi þyrlusveitin aðeins haft eina vél til taks. „Það er haugasjór. Það er mjög slæmt veður. Við erum með þarna fimm, sex metra ölduhæð. Það er kolniðamyrkur og þetta er djúpt fyrir Austurlandi.“ Allir sem hafi komið að þessari björgunaraðgerð hafi gert eins vel og aðstæður leyfðu.
Að hífa 17 manns upp úr sjónum hafi verið mikið þrekvirki. Þá hafi áhöfn TF-GRO þyrlunnar lagt sig í hættu, enda ekki önnur þyrla til að bjarga áhöfninni ef TF-GRO færi í sjóinn. Það væri algjört lykilatriði að bæta fjórðu þyrlunni við og hana ætti að staðsetja utan höfuðborgarsvæðisins til að stytta flugtíma á miðin.
„Það eru 20 ár síðan ég byrjaði sjálfur til sjós og þá var þetta vandamál og þetta er enn vandamál í dag,“ sagði hann. Byggja ætti á þeim góða grunni sem sé til hjá Gæslunni áður en farið verði að ræða um kaup á til dæmis fjarstýrðum kafbátum eða einhverju álíka. Til dæmis þyrfti að gera varðskipin út með fullnægjandi hætti en svo væri ekki í dag.
Væri ekki til frásagnar ef ekki væri fyrir þyrlur Gæslunnar
Aríel sagðist hafa heyrt hljóðið í mörgum sjómönnum, núverandi og fyrrverandi, starfsmönnum Gæslunnar og fleirum. „Það eru allir skoðanabræður mínir í þessum efnum. Þetta snýst um það að efla Gæsluna, fókusera á að skapa rekstrargrundvöll fyrir þeim tækjum sem Gæslan hefur úr að moða í dag og jafnframt bæta við þessari fjórðu þyrlu og staðsetja annars staðar á landinu.“
Aríel segir að þyrlurnar séu eins og sjúkrabílar sjómanna og hafi bjargað lífi margra sem hafi veikst alvarlega eða slasast á sjó.
Sjálfur hafi hann lent í slysi á fingrum úti á sjó þegar hann var tvítugur.
„Ef ekki hefði verið fyrir þyrlu Landhelgisgæslunnar væri ég sem sagt alla vega einum puttanum styttri í dag. En af því að þyrla gat komið og skutlað mér í aðgerð á innan við þremur klukkustundum frá því að slysið gerðist og þar til ég var kominn inn til læknishendur var ég með alla fingur enn þann daginn í dag. Svipaða sögu hafa margir að segja sem hafa fengið fyrir hjartað eða fengið slag eða slasast til sjós, sem væru ekki til frásagnir ef ekki væri fyrir þá lífsbjörg sem er af þyrlukosti Landhelgisgæslunnar.“