Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að Rússland og Úkraína hafi gert með sér samkomulag um að láta af árásum á orkuinnviði hvort annars.
Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti segist þó ekki kannast við slíkt samkomulag. Rússland hefur ekki tjáð sig um staðhæfingu Trumps.
Rússlandsher hefur gert miklar árásir á Úkraínu, meðal annars á orkuinnviði. Úkraína hefur svarað fyrir þær með árásum á rússneska olíuinnviði.
Síðustu daga hefur andað köldu milli forseta Bandaríkjanna og Úkraínu vegna þessa. Trump hefur lýst yfir óánægju sinni með Zelensky vegna árásanna sem hann segir hafa í för með sér hækkun á verði dísilolíu.
Hann krafðist afsagnar Zelenskys í gær og hélt því fram að ef hann hefði verið forseti hefði aldrei brotist út stríð.
Zelensky sagði fyrr í dag að Úkraínumenn væru reiðubúnir að láta af árásum á olíuinnviði í Rússlandi ef Rússar hættu sínum árásum á úkraínska orkuinnviði.