Samkvæmt nýrri samgönguáætlun sem á að gilda til 2040 er gert ráð fyrir að ríkisframlög til sjóvarna lækki úr 181 milljón niður í 144 milljónir til ársins 2030.
Halla Hrund Logadóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, vakti athygli á niðurskurðinum á Alþingi í vikunni.
„Samgönguáætlun sýni þveröfuga áherslu“
Í desember á síðasta ári birti Veðurstofa Íslands skýrslu um mat á sjávarstöðuhækkun. Þar er gert ráð fyrir því að sjávarflóðahætta muni aukast verulega hér á landi á næstu áratugum með hækkandi sjávarmáli. Þörfin fyrir sjóvarnir aukist til muna.
„Í raun og veru má segja að samgönguáætlun sýni þveröfuga áherslu með niðurskurði í stað þess að sýna þá sókn sem málaflokkurinn þarf á að halda. Við erum dálítið á flæðiskeri stödd en við þurfum fast land undir fótum í þessum málaflokki eins og í öðrum náttúruvám,“ sagði Halla Hrund í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar.
Í desember varð mikið flóð við Vík í Mýrdal og gekk sjór til að mynda yfir þjóðveginn. Sveitarstjóri Mýrdalshrepps lýsti þá aðgerðarleysi stjórnvalda og sagði að ef ekki yrði ráðist í sjóvarnir á svæðinu myndi vegurinn að endingu fara í sundur.
„Megum ekki láta þessi samfélög sitja eftir“
Halla segir ljóst að mikilvægum innviðum verði einnig stefnt í hættu víða annars staðar ef ekki verður brugðist við.
„Það eru fleiri bæjarfélög hringinn í kringum Ísland sem hafa verið að finna fyrir auknum ágangi sjávar og eru að kalla eftir því að stjórnvöld fjárfesti meira í vörnum sem passa þá upp á bæði innviði og heimili. Sko, Vík í Mýrdal, Suðurnesjabær, Akranes og Akureyri eru dæmi um staði þar sem þetta er farið að hafa áhrif og farið að vera raunverulegur áhættuþáttur.“
Það sé kominn tími til að fjárfesta í öflugri vörnum. Í raun sé um landsbyggðarmál að ræða.
„Við höfum lengi búið við skriðuföll, jarðskjálfta og snjóflóð. Þar er kortlagning og vöktun komin lengra og viðbrögð í fjárfestingu varnargarða komin lengra, en við megum ekki láta þessi samfélög sitja eftir vegna þessarar nýju ógnar.“