Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hafa borist sex tilkynningar um skemmdarverk á bílum í þessum mánuði. Málið er til rannsóknar. Mikil umræða fer nú fram á samfélagsmiðlum þar sem íbúar í Vesturbæ, Hlíðunum og Vogahverfi hafa birt myndir af bílum sem hafa verið rispaðir.
„Ég hef ekkert heyrt í lögreglunni enn, þetta er væntanlega allt í vinnslu,“ segir Kristján Ingi Einarsson íbúi við Flyðrugranda í Vesturbænum í samtali við Vísi. Hann birti mynd af bíl sínum á miðvikudag í íbúahópi en hakakross hafði verið rispaður á bílinn. Kristján segist hafa fengið mikil viðbrögð við færslunni en hann fór með bílinn í viðgerð hið fyrsta enda ekki hægt að keyra um með hakakross á bílnum.
Hvað kostar að gera við svona?
„Tja, ég þarf að borga allavega 150 þúsund krónur í sjálfsábyrgð. Þannig þetta eru töluverðir fjármunir og ég tala nú ekki um ef það eru margir að lenda í þessu. Það mikilvægt að það sé rætt um þetta,“ segir Kristján.
Þá birti íbúi í Stórholti myndband af óprúttnum aðila í hettupeysu sem rispaði bíl hans með lykli í síðustu viku. Ekki var um að ræða eina bílinn í götunni það kvöldið sem varð fyrir skemmdum að sögn íbúans sem birti myndbandið í íbúahópi.
Lögregla hefur biðlað til íbúa sem kunna að hafa upplýsingum um málið að hafa samband við lögreglu. Þeim er bent á að hringja í síma 444-1000 eða senda tölvupóst á gudmundur.petur@lrh.is. Lögreglan óskaði sér í lagi eftir upplýsingum um mannferðir á þessum stöðum.