Fyrri dagur verkefnisins fór fram í gær en þá fóru samtöl fram í menntaskólum víða um land og Halla Tómasdóttir forseti hélt einnig samtal á Bessastöðum. Dagskráin hefst klukkan 14:00.
Verkefnið var þannig upp sett að ungt fólk leiðir samtalið en þeim sem yngri og eldri eru var boðið að taka þátt til að skapa raunverulegt samtal kynslóða. Meðal umræðuefna eru menntun, framtíðin, gervigreind, samfélagsmiðlar og tungumálið en hægt var að senda inn tillögur að umræðuefnum til umsjónaraðila verkefnisins.
Að verkefninu stendur Samtal, félag til almannaheilla, í víðtæku samstarfi við ungt fólk, skóla, félagasamtök, stofnanir og stjórnvöld um allt land. Tilefnið er að fjörutíu ár eru liðin frá leiðtogafundinum í Höfða.
Beint streymi frá seinni dag Samtalsins má finna hér að neðan en í dag mun ungt fólk kynna niðurstöður samtala gærdagsins og þá mun Halla Tómasdóttir, forseti Íslands og verndari verkefnisins, flytja ávarp.
Einnig koma fram Stúlknakór Kársness, Stúlknakór Reykjavíkur, Tjarnarkórinn, Fjallabræður og Karlakór Reykjavíkur en sungin verða lög helguð friði og bjartri framtíðarsýn.