Lögregla handtók mann í gærkvöld sem er grunaður um líkamsárás og brot á vopnalögum. Rafmagnsvopn, svokallaður „taser“ eða stuðbyssa, fannst í fórum mannsins við hantöku. Hann beitti vopninu þó ekki í líkamsárásinni, að sögn Árna Friðleifssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Brotaþoli var fluttur á slysadeild eftir árásina. Árni segist ekki vita neitt frekar um ástand hans en að hann hafi verið viðræðuhæfur í sjúkrabílnum.
Lögregla hefur staðið í ströngu um helgina ef marka má dagbók lögreglu. Í nótt var annar maður handtekinn grunaður um minniháttar líkamsárás og snemma í gærmorgun voru þrír handteknir fyrir líkamsárás gegn einum manni.
Tveir hinna handteknu voru undir lögaldri, 16 og 17 ára. Skýrsla var tekin af þeim fyrir rannsókn málsins í samráði við barnavernd og foreldra.
Árni segir að brotaþoli árásarinnar hafi verið á þrítugsaldi. Hann var fluttur á bráðamóttöku með andlitsáverka.