Hæstiréttur hefur talað skýrt. Við höfum ekki innleitt bókun 35 þannig að íslenskir dómstólar geti beitt þeirri forgangsreglu sem bókunin felur í sér. Þess vegna er skortur á innleiðingu bókunar 35 samningsbrot gagnvart samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Hæstiréttur hefur í raun sent ákall á löggjafann um að bæta úr þessari stöðu. Dóra Sif Tynes, lögmaður og sérfræðingur í ESB- og EES-rétti, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.
Dóra Sif Tynes: Hæstiréttur hefur talað skýrt – Alþingi hefur ekki innleitt bókun 35