Undanfarið hefur borið á því að fólk hafi fordæmt vinnubrögð fjölmiðla á meðan aðrir hrósa og lofa. Á dögunum var Elísabet Inga Sigurðardóttir til að mynda þó nokkuð í sviðsljósinu eftir að hafa fylgt Ingu Sæland, formanni Flokks fólksins, eftir fyrir utan Menntaskólann í Reykjavík og þegar fyrirsögn á viðtali við fjármálaráðherra fór öfugt ofan í ráðherrann sem var þó ánægður með viðtalið.
Hér fyrir neðan má sjá þáttinn þar sem Elísabet Inga var tekin á teppið.
Þá birti DV nafnlausan skoðanapistil, sem eigandi miðilsins skrifaði, þar sem Elísabet var sökuð um að vera leynilegur útsendari Sjálfstæðisflokksins og apa eftir Stefáni Einari Stefánssyni hjá Morgunblaðinu.
Elísabet Inga mætti í myndver til að svara fyrir sig með nokkuð kostulegri útkomu. Þar sagðist hún hvorki hafa verið leiðinleg né frek. Að öllu gríni slepptu þá er farið yfir hlutverk fréttamanna og fjölmiðla í lýðræðisríki og reynt að varpa ljósi á afhverju fréttamenn gera það sem þeir gera, hvort sem það er að sitja fyrir ráðamönnum eða velta upp ólíkum sjónarmiðum á flóknum málum.
Jakob Bjarnar lætur einnig sjá sig í þættinum enda áratugareynsla að baki í hans lífi innan fjölmiðlaumhverfisins. Í lok þáttarins fer þáttastjórnandi á persónulegu nóturnar og dregur tjöldin frá í eins bókstaflegum skilningi og mögulegt er.
Eins og áður segir má sjá þáttinn í spilaranum hér að ofan en umræðan um fjölmiðla hefst í seinni hluta þáttarins.