Þúsundir mótmælenda voru handteknir í Nýju-Delí, höfuðborg Indlands, í dag þegar mótmælt var breytingum á kjörskrá landsins. Þetta kemur fram í tilkynningu ungmennahreyfingarinnar Kakkalakkaflokksins Janta, sem stóð fyrir mótmælunum.
Hreyfingin segir yfir 15 þúsund manns hafa verið handtekna, þar á meðal stofnanda hennar og tvo aðra leiðtoga. Indverska dagblaðið The Hindu greinir hins vegar frá rúmlega fimm þúsund handtökum.
AFP-fréttastofunni hefur ekki tekist að staðfesta fjöldann og lögregla hefur ekki svarað fyrirspurnum þeirra um málið.
Yfirvöld gripu til umfangsmikilla öryggisráðstafana fyrir mótmælin. Þúsundir lögreglumanna voru kallaðar út, tugum neðanjarðarlestarstöðva lokað og meira en 200 lestarferðum aflýst.
Þá var farsímanet tímabundið tekið úr sambandi í nágrenni mótmælasvæðisins.
Óttast að milljónir missi kosningaréttinn
Mótmælin beinast gegn endurskoðun kjörskrár sem hófst árið 2025. Stjórnarandstæðingar óttast að breytingarnar geti svipt milljónir Indverja kosningarétti og orðið Bharatiya Janata-flokki Narendras Modi forsætisráðherra til framdráttar.
Samkvæmt indverskum fjölmiðlum hafa yfir 133 milljónir nafna verið felldar út af drögum að kjörskrám við endurskoðunina.
Yfirkjörstjórn Indlands hafnar ásökunum um misferli og segir tilgang breytinganna að fjarlægja tvískráningar og einstaklinga sem ekki hafi kosningarétt.
Mótmælendur krefjast þess að Gyanesh Kumar, yfirmaður kjörstjórnarinnar, segi af sér og að endurskoðuninni verði hætt.