Um helgina fer fram sýningin Íslenskur landbúnaður 2026 í Laugardalshöll en fagsýningarfyrirtækið Ritsýn stendur fyrir sýningunni. Hátt í hundrað sýnendur taka þátt í sýningunni, bæði innan- og utandyra í Laugardalnum, segir í tilkynningu frá Ritsýn. Fjölmenni virðist hafa sótt sýninguna í dag en lögregla sektaði á annað hundrað ökumenn fyrir stöðubrot.
„Við fengum ábendingar um slæmt ástand við Laugardalshöll og við fórum bara og brugðumst við því,“ segir Árni Friðleifsson, aðalvarðstjóri umferðardeildar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Á annað hundrað bíla hafi verið lagt ólöglega, ýmist við Laugardalshöll og í götum Laugardals.
„Umferðarlög gilda á laugardögum eins og aðra daga,“ segir hann.