Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, hefur verið kjörinn nýr varaformaður flokksins. Þetta gerðist á flokksstjórnarfundi í Suðurnesjabæ síðdegis.
Hann var einn í framboði og var því sjálfkjörinn.
Guðmundur Ari verður varaformaður út kjörtímabil Guðmundar Árna Stefánssonar, fyrrverandi varaformanns. Annað varaformannskjör verður svo haldið á landsfundi Samfylkingarinnar í vor.
Guðmundur Árni tilkynnti að hann ætlaði að hætta sem varaformaður í maí.