Bandarískur kviðdómur sakfelldi í dag tæknirisann Huawei fyrir að stela iðnaðarleyndarmálum.
Réttarhöldin yfir Huawei stóðu yfir í þrjá mánuði fyrir alríkisdómstól í New York-ríki og var fyrirtækið að endingu sakfellt í tíu ákæruliðum af tólf, þar á meðal fyrir bankasvik, samsæri um að stela iðnaðarleyndarmálum og samsæri um að svíkja Bandaríkin.
„Meðal þeirra hugverka sem fengin voru með ólögmætum hætti voru iðnaðarleyndarmál og höfundarréttarvarið efni, svo sem frumkóðar og notendahandbækur fyrir netbeina, loftnetstækni og tækni til prófunar á vélmennum,“ sagði dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna í tilkynningu.
Starfsmenn verðlaunaðir fyrir upplýsingaöflun
Huawei var einnig sakað um að gera tilraunir til að lokka til sín starfsmenn bandarískra fjarskiptafyrirtækja í því skyni að fá frá þeim tæknilegar upplýsingar. Þær upplýsingar eru sagðar hafa gert Huawei kleift að framleiða vörur sem svipaði til framleiðslu keppinauta þeirra.
Fyrirtækið gekk svo langt að koma á fót bónuskerfi meðal starfsmanna sinna sem miðaði að því að launa þeim fyrir að afla iðnaðarleyndarmála frá öðrum fyrirtækjum.
Ríkisstjórn Donalds Trump Bandaríkjaforseta hefur lengi haft horn í síðu Huawei og sagt hættu á að fyrirtækið njósni fyrir kínversk stjórnvöld. Þá hafa Bandaríkin áður ráðið löndum frá því að nota innviði Huawei til að innleiða 5-G farsímanet.