Ísland er í efsta sæti vestrænna þjóða og í 20. sæti á heimsvísu í fjölda þeirra sem vinna tvær vinnur eða fleiri. Er það til merkis um að ein vinna dugi ekki mörgum til þess að ná að brúa bilið á milli tekna og útgjalda.Þetta kemur fram í nýrri úttekt tímaritsins CEOWORLD þar sem reiknað var hlutfall þeirra sem hafa að minnsta kosti tvær vinnur í öllum löndum heimsins.Afríka á toppnumÁ toppi listans tróna að mestu leyti fátæk ríki í þriðja heiminum. Átta af efstu tíu ríkjunum eru í Afríku sunnan Sahara, þar á meðal efstu sex ríkin.
Íslendingar efstir vestrænna þjóða á lista sem við viljum ekki vera á