Telja að áhersla á hallalaus fjárlög geti aukið niðursveiflu

Telja að áhersla á hallalaus fjárlög geti aukið niðursveiflu

Telja að áhersla á hallalaus fjárlög geti aukið niðursveiflu

Konráð Guðjónsson hagfræðingur og Már Wolfgang Mixa, prófessor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, telja að ekki sé raunveruleg þörf á því að ríkið skili hallalausum fjármálum á næsta ári. Rætt var við þá í Kastljósi í kvöld.

Að þeirra mati eru efnahagshorfur á næstunni það slæmar að ekki sé rétti tíminn fyrir aðhald hjá ríkinu. Slíkt geti í raun aukið á komandi niðursveiflu.

„Það er viðvarandi verkefni að það sé aðhald að ríkissjóði, það þarf að horfa í hverja krónu og það þarf að finna verkefni sem hægt er að hætta til þess að skapa svigrúm fyrir það sem fólk vill gera,“ sagði Konráð. „Það sem ruglast í umræðunni er að það er allt annað hvort ríkið sé að ýta undir eftirspurn eða draga úr henni.“

Telur að unnið sé gegn stöðugleikareglunni

Konráð vitnar til þess að á síðasta ári hafi verið sett á svokölluð stöðugleikaregla sem unnin var á tímum síðustu ríkisstjórnar.

„Núverandi ríkisstjórn kláraði hana til þess að jafna þessi áhrif ríkisins,“ segir Konráð

Reglan kveður á um að undirliggjandi útgjöld A1-hluta ríkissjóðs megi vaxa um að hámarki 2,0% að raunvirði á ári. Konráð segir að grundvallarstefna reglunnar sé að ríkið eigi að halda útgjaldavexti stöðugum og ekki að ýta undir sveiflur í hagkerfinu.

„Til dæmis þegar það gengur vel og það koma aukatekjur, að það sé ekki verið að eyða þeim öllum bara til þess að búa til þenslu. Núna erum við raunverulega að gera öfugt við það sem ég hélt að allir væru orðnir sammála um að væri ekki góð hugmynd nema ef jafnvægi ríkissjóðs væri í einhverjum bráðum vanda,“ segir Konráð sem metur stöðuna ekki þannig að raunveruleg þörf sé á hallaleysi.

Hafa boðað frekara aðhald eftir spá Seðlabankans

Ríkisstjórnin hefur lagt mikla áherslu á að skila hallalausum fjárlögum á næsta ári. Fyrr í dag sagðist Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, bjartsýnn á að verðbólga minnki og að hægt verði að lækka vexti um áramót. Önnur umræða um fjárlagafrumvarpið verður í byrjun desember. Ríkisstjórnin afgreiddi í dag breytingartillögu til að bregðast við þróun hagkerfisins.

Daði Már sagði að aðhald verði aukið lítillega – til að auka svigrúm og tryggja hallaleysi fjárlaga. Skattar verði ekki hækkaðir og engar ríkiseignir seldar umfram það sem hafi verið tilkynnt. Upphaflega var gert ráð fyrir 5 milljarða afgangi af fjárlögunum en í spá Seðlabanka Íslands var gert ráð fyrir 17 milljarða halla.

Hagfræði 101

Már Wolfgang Mixa segist í meginatriðum sammála Konráð.

„Þetta er nánast hagfræði 101 að ríkið gefur í þegar það á sér stað niðursveifla og dregur úr þegar uppsveifla er í gangi,“ segir hann. Hann nefnir að atvinnuleysi hafi sjaldan mælst jafn hátt síðustu ár og að eina undantekningin séu árin þegar Covid-faraldurinn geisaði. Þá sé gjaldþrotum að fjölga, sérstaklega í byggingageiranum.

Már segir að einföld leið ríkisins til að draga úr þenslu sé að hækka skatta. Hann sé þó ekki endilega á þeirri skoðun að það verði að gerast núna.

„Hins vegar er það mín skoðun í dag að það ætti alls ekki núna að draga úr umsvifum ríkisins nú þegar það er fyrirséð að það er aukið atvinnuleysi,“ segir hann.

Varðandi fyrirhugaðar skattahækkanir segir hann tímasetninguna á náttúrupassa og færslu baðlóna í hærra skattþrep þó slæma. „Við þurfum að örva hagkerfið núna, það er alveg fyrirséð,“ segir hann.

Már segist þó ekki skilja háa raunvaxtastefnu Seðlabankans en Seðlabankinn ákvað við síðustu stýrivaxtaákvörðun að halda þeim óbreyttum í 8,00%. Það sé sérstaklega undarlegt þar sem flestar spár bendi til þess að verðbólga muni lækka á næsta ári.

#fjárlög #geti #hallalaus #telja #áhersla

Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-11-24-telja-ad-ahersla-a-hallalaus-fjarlog-geti-aukid-nidursveiflu-493704

📰 Aðrar fréttir

Ný gögn varpa ljósi á gríðarlegt mannfall Rússa – Yfir 700 þúsund hermenn taldir hafa fallið
📅 24.11.2026 👁️ 1
Ný gögn varpa ljósi á gríðarlegt mannfall Rússa – Yfir 700 þúsund hermenn taldir hafa fallið
Rúmlega 700 þúsund rússneskir hermenn eru taldir hafa fallið í stríðinu í Úkraínu samkvæmt nýrri greiningu tveggja óháðra rússneskra fjölmiðla, Meduza...
Ministers ask public for views on changing age of consent
📅 24.11.2026 👁️ 2
Ministers ask public for views on changing age of consent
Some campaigners have argued that different limits should apply, depending on the age gap between the people involved.
Nuclear test veterans will get full truth, says Burnham, as he confirms independent panel
📅 24.11.2026 👁️ 1
Nuclear test veterans will get full truth, says Burnham, as he confirms independent panel
The prime minister says a Hillsborough-style independent panel will examine the health legacy of Britain's Cold War-era atomic programme.
Áform um djúpsjávarhöfn í Hvalfjarðarsveit
📅 24.11.2026 👁️ 2
Áform um djúpsjávarhöfn í Hvalfjarðarsveit
Ný djúpsjávarhöfn á að rísa í Hvalfjarðarsveit. Galtarhöfn ehf. áformar bygginguna og verkefnastjóri er Gunnar Þór Gunnarsson. Gert er ráð fyrir að hö...
Bonnie Blue heldur áfram að hneyksla – Nú með því að bjóða upp á eigin brjóstamjólk
📅 24.11.2026 👁️ 2
Bonnie Blue heldur áfram að hneyksla – Nú með því að bjóða upp á eigin brjóstamjólk
Breska klámstjarnan Bonnie Blue heldur áfram að valda usla með framgöngu sinni, nú með því bjóða ungum karlmönnum að drekka brjóstamjólkina sína. Hin ...
Íslendingar efstir vestrænna þjóða á lista sem við viljum ekki vera á
📅 24.11.2026 👁️ 2
Íslendingar efstir vestrænna þjóða á lista sem við viljum ekki vera á
Ísland er í efsta sæti vestrænna þjóða og í 20. sæti á heimsvísu í fjölda þeirra sem vinna tvær vinnur eða fleiri. Er það til merkis um að ein vinna d...
Bjóða 90% afslátt af heitu vatni en laugin stendur enn tóm
📅 24.11.2026 👁️ 3
Bjóða 90% afslátt af heitu vatni en laugin stendur enn tóm
Magnús Barðdal, sveitarstjóri Skagafjarðar, segir heilbrigðisráðherra benda á Heilbrigðisstofnun Norðurlands þegar hann leitar svara um hvort endurhæf...
Augljóst að Frederiksen sé að daðra við samsæriskenningu
📅 24.11.2026 👁️ 2
Augljóst að Frederiksen sé að daðra við samsæriskenningu
„Það blasir alveg við að Mette Frederiksen slær í og úr og daðrar að einhverju leyti við kenninguna um útskiptin miklu eða The great replacement,“ seg...
Netþrjótar komist inn í kerfi CIA - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 3
Netþrjótar komist inn í kerfi CIA - Vísir
AP segir að brotist hafi verið inn í kerfi tileinkað ákveðinni tegund upplýsingaöflunar sem reiði sig á gögn sem eru þegar aðgengileg á opinberum vett...
Kalkúnum stolið í skjóli nætur - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 2
Kalkúnum stolið í skjóli nætur - Vísir
Sandra Björk Ingadóttir og Kristín Einarsdóttir áttu fuglana þrjá og bjuggu þeir í fjárhúsi í nágrenni við Garðinn. Þær eru eins konar áhugabændur og ...
Unnar hrelldi móður og son hennar – „lögga her lögga thar eg kem til thin tík“
📅 24.11.2026 👁️ 5
Unnar hrelldi móður og son hennar – „lögga her lögga thar eg kem til thin tík“
Síbrotamaðurinn Unnar Sigurður Hansen var í dag dæmdur í 2 ára og 8 mánaða fangelsi fyrir rangar sakargiftir, hótanir og ógnanir gegn mæðginum auk ítr...
Ætt­leiddur á fer­tugs­aldri - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 5
Ætt­leiddur á fer­tugs­aldri - Vísir
Samkvæmt umfjöllun danska ríkisútvarpsins kom Christian á heimili fósturforeldra sinna Bente og Jes Thorup Børjesson fjögurra ára gamall. Hann hafði á...
Þremur kalkúnum stolið í Garðinum
📅 24.11.2026 👁️ 5
Þremur kalkúnum stolið í Garðinum
Þremur kalkúnum var stolið af ræktendum í Garðinum í Suðurnesjabæ um helgina. Sandra Björk Ingadóttir og Kristín Einarsdóttir áttu fuglana og hafa ver...
Huawei found guilty of stealing trade secrets but acquitted of racketeering
📅 24.11.2026 👁️ 2
Huawei found guilty of stealing trade secrets but acquitted of racketeering
The verdict follows a months-long trial in New York.
Fjögur koma til greina í forstjórastólinn
📅 24.11.2026 👁️ 2
Fjögur koma til greina í forstjórastólinn
Fjórir umsækjendur koma til greina í starf forstjóra Landsvirkjunar eftir starfsviðtöl síðustu vikna. Viðskiptablaðið greinir frá.Samkvæmt heimildum V...
„Hættulegir einstaklingar hafa komist upp með að hóta lögreglumönnum“
📅 24.11.2026 👁️ 3
„Hættulegir einstaklingar hafa komist upp með að hóta lögreglumönnum“
„Ef þú ert að stoppa einhverja menn sem eru þekktir glæpamenn, átt þú þá að hætta að stoppa þá? Áttu þá bara að hætta og leyfa þeim að halda áfram að ...
Efasemdir um Stafræna heilsu
📅 24.11.2026 👁️ 4
Efasemdir um Stafræna heilsu
Áður en Alþingi hefur samþykkt lög um Stafræna heilsu er heilbrigðisráðuneytið á lokametrum með umfangsmikið útboð vegna verkefnisins. Frestur til að ...
Himinlifandi með leiguverðið á Íslandi – Leigir þetta fyrir 82 þúsund krónur á mánuði
📅 24.11.2026 👁️ 3
Himinlifandi með leiguverðið á Íslandi – Leigir þetta fyrir 82 þúsund krónur á mánuði
Pazos, ungur spænskur þjónn, sér ekki eftir því að hafa flutt til Íslands. Hann er ánægður með húsaleiguna og launin en viðurkennir að veðrið mætti ve...
Hug­rekki, mandarínur og máttur barnanna - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 4
Hug­rekki, mandarínur og máttur barnanna - Vísir
Ragnheiður Harpa er fædd árið 1988 og hefur komið víða við í bókmenntaheiminum en hún hlaut nýverið Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir hand...
Björgunarsveit á Djúpavogi grátt leikin við gjaldþrot fjölskyldufyrirtækis á Selfossi
📅 24.11.2026 👁️ 3
Björgunarsveit á Djúpavogi grátt leikin við gjaldþrot fjölskyldufyrirtækis á Selfossi
Þann 21. október voru tvö fjölskyldufyrirtæki á Selfossi, í eigu sömu eigenda, lýst gjaldþrota. Samkvæmt heimildum DV á lítil björgunarsveit, Bára á D...
Fimm úr sömu fjölskyldu fundust látin – Óhugnanlegt símtal til neyðarlínunnar
📅 24.11.2026 👁️ 2
Fimm úr sömu fjölskyldu fundust látin – Óhugnanlegt símtal til neyðarlínunnar
Harmleikur átti sér stað í Plant City í Flórída í Bandaríkjunum síðastliðinn fimmtudag þegar fimm manna fjölskylda fannst látin á heimili sínu.Lögregl...
Skiptar skoðanir um Hagaskólamálið – „Er þetta framtíðin hjá okkur?“
📅 24.11.2026 👁️ 3
Skiptar skoðanir um Hagaskólamálið – „Er þetta framtíðin hjá okkur?“
„Mér fannst þetta bara fáránlegt. Ég skildi ekki hvaða erindi þessi frétt átti við okkur. Svo auðvitað komu fréttir um að þetta hafi verið alvarlegra ...
Flateyringar ræddu ásýnd snjóflóðavarna á íbúafundi
📅 24.11.2026 👁️ 3
Flateyringar ræddu ásýnd snjóflóðavarna á íbúafundi
Eftir snjóflóðið sem féll á Flateyri 2020 og fór að hluta yfir varnargarðinn þurfti að bæta við varnarmannvirkin fyrir ofan bæinn. Framkvæmdir hófustu...
Aukið eftirlit við Mjódd eftir blóðuga árás
📅 24.11.2026 👁️ 2
Aukið eftirlit við Mjódd eftir blóðuga árás
Myndband af hópárás ungmenna á feðga fyrir utan Mjóddina í Breiðholti hefur verið í dreifingu á samfélagsmiðlum. Lögreglan segir að svona mál séu ekki...
Barn mætti með þrívíddar­prentað vopn í skólann - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 3
Barn mætti með þrívíddar­prentað vopn í skólann - Vísir
Þetta segir Grétar Stefánsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við fréttastofu. Hann gat ekki staðfest nafn seinni skól...
Substance released at Don Toliver concert could be linked to robberies, police say
📅 24.11.2026 👁️ 2
Substance released at Don Toliver concert could be linked to robberies, police say
Police are investigating a possible link between the Co-op Live evacuation and reported robberies.
Substance at Don Toliver Manchester show may be linked to robberies, police say
📅 24.11.2026 👁️ 3
Substance at Don Toliver Manchester show may be linked to robberies, police say
Police are investigating a possible link between the Co-op Live evacuation and reported robberies.
Þurftu að flýja heimilið en enginn var ákærður
📅 24.11.2026 👁️ 4
Þurftu að flýja heimilið en enginn var ákærður
Það vakti athygli og óhug sumarið 2025 þegar greint var frá því að hópur vopnaðra og grímuklæddra manna hefði setið fyrir lögreglumanni við heimili ha...
Engin átök og hópamyndun inni í Mjóddinni sjálfri
📅 24.11.2026 👁️ 4
Engin átök og hópamyndun inni í Mjóddinni sjálfri
„Mín upplifun er að þetta sé svolítið rangur fréttaflutningur um Mjóddina. Hópamyndun ungmenna sem kemur fram í fréttunum á ekki heima hér inni í Mjód...
Kynþroskahemlar geta haft áhrif á beinþroska – óvissa ríkir um langtímaáhrif
📅 24.11.2026 👁️ 5
Kynþroskahemlar geta haft áhrif á beinþroska – óvissa ríkir um langtímaáhrif
Kynþroskahemlar geta haft áhrif á beinþroska – óvissa ríkir um langtímaáhrif Fréttin24. nóvember 2026Erlent, Heilbrigðismál, Rannsókn, TransmálLeave a...
Fears over the AI boom haven't gone away
📅 24.11.2026 👁️ 4
Fears over the AI boom haven't gone away
There were legitimate fears before Huang's abrupt exit from Nvidia - and his return won't fix it
Sprengjuhótun í grunn­skóla fór í ruslpóstinn - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 3
Sprengjuhótun í grunn­skóla fór í ruslpóstinn - Vísir
Sprengjuhótanir bárust ýmsum stofnunum og fyrirtækjum hér á landi í gærmorgun einnig. Ríkislögreglustjóri hefur sagt að lögregla taki hótununum alvarl...
Sprengjuhótun í grunn­skóla fór í rusl­pósti - Vísir

Gera ráð fyrir rúmlega 344 milljóna rekstrarafgangi
📅 24.11.2026 👁️ 3
Gera ráð fyrir rúmlega 344 milljóna rekstrarafgangi
Fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir næsta ár var samþykkt í bæjarstjórn í dag. Áætlað er að rekstrarniðurstaða samstæðu verði jákvæð um rétt rúmar 344 ...
Wedding car causes scandal in Gran Canaria
📅 24.11.2026 👁️ 6
Wedding car causes scandal in Gran Canaria
Police are investigating a wedding company in Gran Canaria after a car was driven along the pedestrian promenade at Las Canteras beach in Las Palmas, ...
Halldór forviða eftir að hann heyrði sögu Guðmundar – Segir málið hafa kostað hann „frelsi og hugarró“
📅 24.11.2026 👁️ 4
Halldór forviða eftir að hann heyrði sögu Guðmundar – Segir málið hafa kostað hann „frelsi og hugarró“
Halldór Karl Halldórsson, lögmaður, er undrandi á að Guðmundi Ólasyni, fyrrverandi forstjóra, fái ekki réttlæti eins og aðrir í Milestone málinu, þrát...
Sacked London Pride boss given suspended prison sentence
📅 24.11.2026 👁️ 5
Sacked London Pride boss given suspended prison sentence
The sentencing brings a long-running legal battle to an end.
Farin að ná sama árangri og magaermi - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 5
Farin að ná sama árangri og magaermi - Vísir
Erla Gerður Sveinsdóttir sérfræðilæknir í offitumeðferð ræddi þyngdarstjórnunarlyf í Reykjavík síðdegis. Þar segir hún miður að fólk sem þurfi ekki á ...
„Ég held ég gæti gert betra Facebook en Facebook“
📅 24.11.2026 👁️ 5
„Ég held ég gæti gert betra Facebook en Facebook“
Hjónin Ragna Árný Lárusdóttir og Snorri Gylfason þróuðu og hönnuðu samfélagsmiðilinn Alvildu sem ætlaður er fimmtán ára og eldri. Notendur skrá sig in...
Auglýsingatekjur hlaðvarpa margfaldast: „Ég er gríðarlega ánægður með þessa þróun“
📅 24.11.2026 👁️ 4
Auglýsingatekjur hlaðvarpa margfaldast: „Ég er gríðarlega ánægður með þessa þróun“
Auglýsingatekjur hlaðvarpa voru rúmlega hálfur milljarður króna í fyrra. Tekjur þeirra hafa aukist stöðugt frá 2018 og tæplega tífölduðust á milli 202...
Þörf á dýpri umræðu um gervigreind í „algerlega nýjum veruleika“
📅 24.11.2026 👁️ 5
Þörf á dýpri umræðu um gervigreind í „algerlega nýjum veruleika“
Miðflokkurinn hefur óskað eftir sérstakri umræðu um gervigreind á Alþingi, meðal annars til að ræða þátttöku Íslands í alþjóðlegu ákalli um öflug líkö...
Pip disability benefit review calls for closer link with claimant costs
📅 24.11.2026 👁️ 5
Pip disability benefit review calls for closer link with claimant costs
A government-commissioned report calls for a "rebalancing" of the amount paid to different claimants.
Mikill þrýstingur á Mette Frederiksen vegna ummæla um útskipti
📅 24.11.2026 👁️ 4
Mikill þrýstingur á Mette Frederiksen vegna ummæla um útskipti
Mikill þrýstingur er á Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur eftir að hún lét orð falla í viðtali sem túlka má sem daður við samsæriskenninguna...
Holiday Let owners in the Canary Islands face new 2027 deadline
📅 24.11.2026 👁️ 5
Holiday Let owners in the Canary Islands face new 2027 deadline
Owners of holiday rental properties in the Canary Islands have been given more time to complete an important administrative requirement, with a new de...
Dætur Frið­riks léku fyrsta leikinn á minningarmóti - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 3
Dætur Frið­riks léku fyrsta leikinn á minningarmóti - Vísir
Friðrik Ólafsson sem lést á síðasta ári níræður að aldri var fyrsti Íslendingurinn til að verða stórmeistari, árið 1958. Hann varð sexfaldur Íslandsme...
Enn selji Danir okkur maðkað mjöl - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 5
Enn selji Danir okkur maðkað mjöl - Vísir
Tilefnið er umfjöllun um danska hveitiframleiðandann Valsemøllen. Vísir greindi frá því fyrir helgi að ummerki eftir dýr og myglu hefðu fundist í korn...
Nvidia shares slide as Trump's role in Jensen Huang's comeback questioned by US politicians
📅 24.11.2026 👁️ 4
Nvidia shares slide as Trump's role in Jensen Huang's comeback questioned by US politicians
Nvidia's stock market value surged on the annoucement of Huang's reappointment, but some of the gains reversed in Tuesday trading.
US attorney general dodges questions about Nvidia investigation
📅 24.11.2026 👁️ 5
US attorney general dodges questions about Nvidia investigation
Nvidia's share price have fallen 7% as lawmakers demand answers about President Donald Trump's involvement in Huang's reinstatement.
Ertu að skera alls konar úr mataræðinu? - Ragnhildur ráðleggur þetta í staðinn
📅 24.11.2026 👁️ 4
Ertu að skera alls konar úr mataræðinu? - Ragnhildur ráðleggur þetta í staðinn
Pistlar Ragnhildur Þórðardóttir sálfræðings, betur þekkt sem Ragga nagli, sem skrifaðir eru á mannamáli njóta mikilla vinsælda á Facebook-síðu hennar....
Ráðuneytið segir allar umsóknir Vélfags hafa fengið efnislega meðferð
📅 24.11.2026 👁️ 6
Ráðuneytið segir allar umsóknir Vélfags hafa fengið efnislega meðferð
Utanríkisráðuneytið segir að allar undanþágubeiðnir fyrirtækisins Vélfags hafi verið teknar til efnislegrar meðferðar þrátt fyrir kvartanir fyrirtækis...