Hjónin Ragna Árný Lárusdóttir og Snorri Gylfason þróuðu og hönnuðu samfélagsmiðilinn Alvildu sem ætlaður er fimmtán ára og eldri. Notendur skrá sig inn með rafrænum skilríkjum sem Ragna segir að komi í veg fyrir stofnun gervireikninga og botta.
„Þá getum við líka takmarkað það sem er alltaf í umræðunni, það er aldurstakmarkið,“ segir Ragna. Alvilda er til sem smáforrit fyrir Android og Apple auk þess sem nú er komin vafraútgáfa. Ekkert kostar að skrá sig á samfélagsmiðilinn.
Við fórum óformlega í loftið 22. ágúst og fórum síðan og kynntum vefinn á Akureyrarvöku því Snorri er frá Akureyri og á Ljósanótt því ég er úr Keflavík. Þá fórum við bara í að byggja meira upp og ákváðum að bíða þangað til værum komin með vafraútgáfuna vegna þess að það skiptir svolítið marga máli, sérstaklega ef við viljum fá fólk inn með síður og pistlahöfunda. Að ég tali ekki um ef fréttastofa fer að deila sínum fréttum hjá okkur
Hún rifjar upp að Meta ætlaði að breyta notendaskilmálum 20. nóvember sem margir mótmæltu. „Þeir hættu við því miður en okkur fannst ágætis tímasetning til að vekja athygli á okkur, hvað við erum að gera og fyrir hvað við stöndum.“
Farsímaútgáfurnar fóru í loftið í ágústlok. Nýja vefúgáfan er hentugri fyrir lengri pósta, stofnanir, síður og hópa að sögn Snorra. „Við notum rafræn skilríki hvort sem þú ert að skrá þig inn í síma eða á vafra,“ segir Ragna.
Núverandi útgáfa sé eingöngu ætluð Íslendingum. „Þetta hefur með stafrænt sjálfræði að gera, með því að hýsa á Íslandi. Það bætir öryggi að nota rafræn skilríki. Þá þarf fólk að vera ábyrgara í notkun sinni,“ segir Ragna.
Snorri segir horft til viðmiða Evrópusambandsins um að notendur þurfi að verða sextán ára á árinu til að geta komist inn á miðilinn. Hjónin segjast hafa háleit markmið.
Stækkunarhugmyndir okkar fyrir framtíðina eru meðal annars að skólar gætu fengið útgáfu sem þeir stýra vilji þeir hafa samfélagsmiðil þar innan dyra. Það er bara eitthvað til að skoða til framtíðar. Okkur finnst líka áhugavert að bjóða upp á Alvildu í öðrum löndum. Það eru nokkrar þjóðir í Evrópu komnar með rafræn skilríki og það yrði okkar fyrsti markaður. Það er líka komið í umræðu að fleiri ríki taki upp rafræn skilríki.
Ragna segir að hvert ríki myndi hýsa Alvildu hjá sér auk þess sem auglýsingatekjur skiluðu sér þangað. „Þannig að ef einhver rekur miðilinn í Danmörku, sem dæmi, ættu tekjur að skila sér þangað.“
Snorri starfaði sem kerfishönnuður hjá Facebook í tólf ár og þurfti að hætta störfum þar þegar þau Ragna ákváðu að flytja aftur til Íslands í fyrra.
„Þá er ég að vinna fyrir hóp í London og verkefnið var flutt til Bandaríkjanna. Ég fékk reisupassann og það bara hentaði mér ágætlega vegna þess að ég fékk greitt meira og minna út árið. Þá erum við bara að ræða þessi mál.“
Þeim hafi fundist Facebook aðeins hafa misst fótanna. „Það var orðið uppfullt af póstum frá fólki sem þú þekkir ekki, frá hópum sem þú fylgir og síðum sem þú fylgir og ég segi eitthvað svona: Ég held ég gæti gert betra Facebook en Facebook.“ Þau hafi ákveðið að láta á þetta reyna og síðan hefur verkefnið undið upp á sig.
„Það virðast allir vera mjög hrifnir af því að fá einhvern annan valkost en það sem fyrir er. Það hefur verið mjög pósítívt.“ Hjónin segjast hafa fundið að margir hafi óbeit á tæknirisum heimsins og því hýsa þau öll gögn hérlendis.
„Stafræn sjálfbærni virðist skipta miklu máli.“ Þau reyni að nota erlendar þjónustur sem minnst og hýsa tölvurnar í gagnaverum fyrir norðan og hér syðra. Auk þess hverfi óheyrilegar fjárhæðir úr landi í formi auglýsingatekna.
„Það átti að fara að rukka fyrirtæki fyrir hvern póst og það átti að taka afrit af öllum gögnum og ég held að þetta ofbjóði fólki,“ segir Snorri. „Það virðist skipta miklu máli að gögnin séu hérna, að það sé engin spurning um hvaða lög gilda um þau eða samfélagsmiðilinn. Það gilda bara íslensk lög hjá okkur.“
Kúnstug kona í Hrísey og kvenkyns sjóræningi.
Þegar hafa um tvö þúsund manns skráð sig á Alvildu sem á nafn sitt að rekja til kúnstugrar konu úr Hrísey og víkingaprinsessu.
„Þetta var nafn á handritaforriti sem ég skrifaði um Möðruvallabók fyrir aldamót. Þá var ég í litlu félagi sem hét Hið íslenska leturlistafélag sem gekk út á að búa til fonta fyrir íslensk handrit. Einn úr hópnum og eiginkona hans stungu upp á nafninu Alvilda sem var skemmtileg og kúnstug kona úr Hrísey,“ segir Snorri.
Hann bætir við að hann hafi aldrei hitt konuna. Eyrún bætir um betur og segir þjóðsöguna af víkingaprinsessunni Alvildu sem vildi ekki ganga að eiga prins sem átti að ráða yfir allri Danmörku.
„Hún stakk af og gerðist sjóræningi. Þá var prinsinn sendur af stað til að stoppa hana af og þegar hann náði henni loksins sagði hann „OK, annaðhvort drep ég þig hér eða þú giftist mér.“ Hún hafi ákveðið að ganga að eiga prinsinn og saman réðu þau yfir sameiginlegri Danmörku. Eyrún segir athyglina hjálpa enda séu þau bara tvö í verkinu og nóg að gera.
Það er ekki nóg að vera með tvö þúsund manns sem hafa skráð sig inn. Þau þurfa að koma aftur. Þess vegna erum við alltaf að reyna að hvetja fólk til að stofna hópa og byrja smátt með litlar fjölskyldur og myndir fyrir afa og ömmu eða eitthvað þess háttar. Síðan er bara ekkert mál fyrir hlaupahópa, saumaklúbba og aðra hópa sem við Íslendingar erum frægir fyrir að skrá sig í Alvildu.
Snorri segir miðilinn hafa vaxið af sjálfu sér. „Þegar fólk fer inn á Alvildu í fyrsta sinn þá sér það sama og ekki neitt. Það er með vilja gert og er fídus en ekki galli vegna þess að við viljum ekki fylla flæðið hjá fólki með einhverju dóti sem það hefur engan áhuga á. Við treystum fólki til að vita hverju það hefur áhuga frekar en einhverjum reikniritum hjá okkur,“ segir Snorri Gylfason.
Hér fyrir neðan má hlusta á viðtalið við þau Snorra og Eyrúnu.