Una Margrét Stefánsdóttir lögmaður Neytendasamtakanna segir algengt að erindi berist frá fólki vegna ókunnuglegra krafna í heimabanka. Margir velti fyrir sér hvaðan fyrirtæki hafi fengið upplýsingar um sig og því komi persónuverndarsjónarmið einnig við sögu.
Hún ráðleggur fólki að greiða ekki strax heldur hafa samband við viðkomandi fyrirtæki og andmæla kröfunni, enda óþægilegt að hafa kröfu í bankanum sem jafnvel safni vöxtum.
Bankar séu almennt ekki tilbúnir að fella niður kröfur í heimabanka þótt neytandinn hafi hvorki skrifað undir samning við fyrirtæki né kannist við nokkur viðskipti. „Neytandinn hefur í raun ekki tækifæri til að grípa til varna fyrr en þetta er komið í innheimtu. Þá auðvitað ber innheimtuaðilum skylda til að upplýsa um lögmæti hennar.“
Hafið öll samskipti skrifleg
Una brýnir fyrir fólki að hafa öll samskipti skrifleg. Ekki þurfi að hafa áhyggjur af almennum kröfum meðan þær liggja enn í bankanum. Hins vegar geti lánshæfismati verið teflt í tvísýnu fari þær í innheimtu.
„Þá er líka hægt að hafa samband beint við Credit Info og tilkynna að þetta sé ekki raunhæf krafa og fara fram á að hún hafi ekki áhrif á lánshæfismatið.“ Auðvelt sé að fela kröfur í heimabankanum og þá dagi þær uppi nema þær fari í innheimtu.
Hver sem er geti lent í því að greiða kröfu sem hann kannast ekki við. Auðvitað séu ákveðnir hópar viðkvæmari en aðrir. „Svo er það líka samviskusemin. Fólk upp til hópa vill standa skil á sínu og er auðvitað hrætt um að þetta hafi áhrif á lánshæfismat og eitthvað slíkt.“