Diana Krall er ein þekktasta djasssöngkona heims og hefur á glæsilegum ferli sínum gefið út fimmtán breiðskífur auk hinnar rómuðu tónleikaplötu Live in Paris, sem færði henni Grammy-verðlaun.
Krall hefur unnið með mörgum af fremstu tónlistarmönnum heims, meðal annars Paul McCartney, Barbru Streisand og Tony Bennett. Árið 2018 sendi hún frá sér plötuna Love Is Here to Stay með Bennett þar sem þau fluttu sígild lög eftir George Gershwin.
Diana Krall er þekkt fyrir einstaka rödd sína, fágaðan píanóleik og persónulega túlkun á sígildum djasslögum og bandarískri dægurtónlist. Spuni skipar stóran sess á tónleikum hennar og á undanförnum árum hefur hún einnig flutt nýjar tónsmíðar eftir sjálfa sig. Með henni á sviðinu í núverandi tríói hennar eru trommuleikarinn Matt Chamberlain og bassaleikarinn Sebastian Steinberg.
Tónleikarnir í Hörpu verða upphafið að Evrópuferð þessarar margverðlaunuðu söngkonu og píanóleikara. Miðasala á tónleikana hefst mánudaginn 30. nóvember.