Ólafur Adolfsson er þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins en hann spurði Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra út í þennan samning og hélt því fram að hann hefði verið gerður án nokkurrar starfslýsingar. Vísaði Ólafur þar í orð ráðgjafans sjálfs, Heiðu Kristínar Helgadóttur, sem sagði í viðtali við ríkissjónvarpið frá kosningavöku Já til að sjá að starfslýsing hennar hefði verið engin.
Þorgerður sagði á Alþingi í svari við fyrirspurn Ólafs að verkefni Heiðu Kristínar hefðu verið skilgreind í samningi.
„Mér finnst miður að það sé verið að vega að manneskju með hálfkveðnum vísum, með dylgjum,“ sagði Þorgerður á Alþingi í gær.
Ólafur hafnaði því síðar á þingfundinum að hann hefði farið með dylgjur og bað ráðherra að tilgreina hvað hún ætti við.
„Þetta er alveg skýrt“
Eftir ríkisstjórnarfund í morgun stóð Þorgerður enn þá við orð sín í garð Ólafs.
„Já, ég geri það af því að mér finnst þetta vera svolítið valkvæð hlustun hjá Sjálfstæðisflokknum þessa dagana. Það er alveg skýrt að þetta er algjörlega samkvæmt þeim ramma sem unnið er eftir og ég get bara nefnt sem dæmi að núna vorum við að ráða mjög öfluga lögfræðinga til þess að vera málsverjendur okkar, íslenska ríkisins, gagnvart ESA út af svonefndri bókun 35. Við réðum þá einfaldlega til verksins og það er líka allt innan ramma laganna. Þetta er svona dæmi um verktakasamninga sem hægt er að gera af hálfu ríkisins og það er það sem við erum að gera, allt innan ramma laganna, allt lögum samkvæmt og þess vegna skil ég ekki af hverju Ólafur Adolfsson er að reyna að velta sér upp úr þessu. En það er sjálfsagt að svara þessu en þetta er alveg skýrt.“
Utanríkisráðuneytið samdi við Nebraska ehf., félag Heiðu Kristínar og eiginmanns hennar, um ráðgjöf Heiðu vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Samkvæmt samningnum var þóknunin 1,75 milljónir króna á mánuði fyrir allt að 25 stunda vinnu á viku. ftir atkvæðagreiðsluna sömdu Þorgerður og Heiða munnlega um 3,5 milljónir króna til viðbótar. Alls greiddi ráðuneytið félaginu því 14 milljónir króna án virðisaukaskatts.
Í fyrstu grein verksamnings utanríkisráðuneytisins við Nebraska ehf. segir að Heiða Kristín taki að sér „stefnumótandi ráðgjöf og verkefni fyrir utanríkisráðherra vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald viðræðna Íslands um aðild að Evrópusambandinu“.
Hagkvæmara en að ráða aðstoðarmann tímabundið
Spurð hvaða verkefni Þorgerður hefði falið Heiðu í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar segir Þorgerður það hafa verið skýrt samkvæmt ráðningarsamningi hvert hennar hlutverk var.
„Og það er alvanalegt að ráðherrar geti gert og geri ráðgjafasamning svo lengi sem þeir eru undir viðmiðunarmörkum og samkvæmt öllum reglum. Og það var þannig í þessu tilviki og ég hef í rauninni ekki miklu við þetta að bæta.“
Þorgerður segir samninginn hafa verið gerðan eftir lögum og þeim ramma sem unnið er eftir.
„Þetta er alveg skýrt. Eftir þessu var farið. Þetta var innan fjárlaga, þetta var innan ramma og þetta var hagkvæmara heldur en að ráða aðstoðarmann tímabundið.“
Vildi klára málið með reisn
Þorgerður segir jafnframt að samningurinn hafi verið tímabundinn og undir viðmiðunarmörkum laga og reglna um opinber innkaup.
Skriflegi samningurinn gilti fram að atkvæðagreiðslunni 29. ágúst en Heiða er sögð hafa sinnt verkefnum eftir að henni lauk og þegið fyrir það viðbótargreiðslu.
Þorgerður segir að það hafi þurft að sinna ýmsum verkefnum og hnýta fyrir lausa enda. Þorgerður bendir á að margir hafi talið tímasetningu þjóðaratkvæðagreiðslunnar illa ráðna en niðurstaðan varð rúmlega 80% kjörsókn.
„Það var mikill áhugi, bæði erlendis frá og á Íslandi. Þannig að verkefnið teygðist á langinn og ég vildi klára það einfaldlega með reisn, sem við gerðum.“