Spænskt par sem búið hefur á Íslandi undanfarna þrjá mánuði hefur vakið athygli með frásögnum sínum af lífinu hér á landi.Þau starfa bæði í heilbrigðisgeiranum og hafa á samfélagsmiðlum sagt frá því sem hefur komið þeim mest á óvart við íslenskt samfélag, vinnumenningu og daglegt líf.Fjallað er um parið í frétt spænska miðilsins La Razon, en þar kemur fram að sífellt fleiri Spánverjar skoði þann kost að setjast að í öðru landi.Afslappaðra andrúmsloftEitt af því sem parið nefnir er hversu afslappað andrúmsloftið er í Reykjavík samanborið við Barcelona.
Spænskt par flutti til Íslands – Íslensk starfskjör komu þeim verulega á óvart