Gunnar starfar sem lögmaður og er einn af eigendum Logos lögmannstofu en Nadia er innanhússhönnuður og löggiltur fasteignasali sem vakti athygli hér árum áður sem þáttastjórnandi hönnunar- og lífsstílsþáttarins Innlit/útlit.
Íbúðin var endurnýjuð að miklu leyti árið 2024 og Nadia hefur nostrað við hvern fermetra. Falleg og ævintýraleg veggfóður þekja nokkra veggi, þar af leiðandi á bogadreginn vegg í stofu sem setur einstakan svip á rýmið.
Í baðherberginu eru ítalskar Terrazzo gólflísar, uppgerður vintage vaskur á fótum og sérpöntuð vintage blöndunartæki svo eitthvað sé nefnt. Vinyl-parket er á gólfi efri hæðar í alrými og herbergjum. Útsýnið er ekki af verri endanum en í borðstofunni eru svalir sem horfa yfir Breiðarfjörðinn. Íbúðin var meðal annars á forsíðu tímaritsins Hús og híbýli árið 2024.
Sjón er sögu ríkari en hér má sjá vel valdar myndir:
Hér má nálgast nánari upplýsingar um eignina.