Þetta segir í aðsendri grein Halldórs Karls, sem er einn eigenda lögmannsstofunnar BBA//Fjeldco, undir yfirskriftinni Einn dómur, tvær niðurstöður; gefum skynsemina ekki upp á bátinn.
Hann hefur grein sína á því að taka fram, formsins vegna, að hann sé ekki lögmaður Guðmundar í málinu heldur séu þeir einfaldlega vinir. Þegar vinskapur tókst með þeim hafi Guðmundur sagt honum reynslusögu sína af íslensku dómskerfi.
„Það er óhætt að segja að hún hafi komið mér í opna skjöldu og gert mig raunar það forviða að ég hef síðan reynt eftir fremsta megni, sem vinur, að aðstoða Guðmund við að ná fram augljósu réttlæti og rétta af stöðu sem hefur þegar kostað hann fjármuni, atvinnutækifæri og það sem er nú líklega mikilvægast: frelsi og hugarró.“
Hafi ekki haft tök á að fara fyrir MDE
Halldór Karl segir að í stuttu máli sé staða Guðmundar þannig að nokkrir einstaklingar hafi verið ákærðir, sýknaðir og síðan sakfelldir í sama máli, fyrir sömu háttsemi og í sama dómi, það er að segja að öllu leyti samsekir. Hluti þeirra hafi kært niðurstöðuna til Mannréttindadómstóls Evrópu en Guðmundur hafi ekki haft tök á því. Ríkið hafi viðurkennt brot á mannréttindum þeirra sem kærðu, málið í kjölfarið endurupptekið gagnvart þeim og þeir sýknaðir.
Þar vísar hann til Milestone-málsins svokallaða, þar sem fimm eigendur og stjórnendur Milestone voru sakfelldir og dæmdir í fangelsi. Það voru þeir Karl og Steingrímur Wernerssynir, sem voru eigendur Milestone, Guðmundur, sem var forstjóri, og tveir endurskoðendur félagsins. Karl fór ásamt endurskoðendunum tveimur með málið fyrir Mannréttindadómstól Evrópu og þar gerðu þeir sátt við ríkið.
Halldór Karl segir að Guðmundur hafi í kjölfarið beðið um sömu meðferð en fengið synjun, meðal annars á þeim grundvelli að ríkið hefði ekki viðurkennt brot gagnvart honum.
„Ríkið hefur síðan hafnað beiðni hans um slíka viðurkenningu. Ríkið hefur síðan hafnað beiðni hans um slíka viðurkenningu. Einhver kann að velta því fyrir sér hvernig standi á þessu en hér að neðan er reynt að varpa frekara ljósi á þessa óréttlátu og stórfurðulegu réttarstöðu Guðmundar.“
Óvænt afstaða ríkissaksóknara
Í grein sinni rekur Halldór Karl Milestone-málið allt frá aðdraganda þess til niðurstöðu Hæstaréttar um frávísun málsins frá dómi og endanlegrar sýknu þeirra þriggja sem fóru með málið fyrir MDE.
Þegar sú niðurstaða lá fyrir hafi Guðmundur réttilega óskað eftir endurupptöku á sínu máli, enda hefði þegar verið sýknað í málum meðákærðu hans.
„En þá tók ríkissaksóknari óvænt aðra afstöðu en hann hafði lagt til grundvallar í máli þremenninganna. Í úrskurðinum er rakið að embættið hafi talið sakfellinguna byggja „alfarið á lagatúlkun“. Það gekkst þó jafnframt við því að í máli Guðmundar „hátti eins til“ og í máli hinna. Í úrskurðinum kemur engin skýring fram á þessum ólíku sjónarmiðum embættisins. Í ofanálag lagði Endurupptökudómur í þetta sinn sjálfstætt mat á dóm Hæstaréttar og taldi skilyrði endurupptöku ekki uppfyllt. Hann tók sjálfur fram að niðurstaðan árið 2021 hefði ekki byggst á „sjálfstæðu efnislegu mati“. Í reynd var sami Hæstaréttardómur því metinn með tveimur ólíkum mælikvörðum, árið 2021 og árið 2023.“
Beiðni Guðmundar hafi því verið hafnað og 1,5 milljóna króna málskostnaður lagður á hann. Í úrskurðinum sé munurinn á aðstöðu aðila skýrður með afstöðu ríkisins; sátt hafi legið fyrir gagnvart sumum en ekki öðrum, og ríkissaksóknari hafi lagst gegn beiðninni.
Skýrt brot
Halldór Karl segist leyfa sér að trúa því að glöggur lesandi sjái að ríkið geti ekki viðurkennt brot gegn mannréttindum þriggja einstaklinga í tilteknu máli, sem leiddi til þess að mál þeirra voru endurupptekin og þeir sýknaðir, en neitað svo að veita öðrum einstaklingi í sama máli sömu viðurkenningu.
„Ég fæ ekki betur séð en að þetta fari skýrlega í bága við jafnræðisreglu 65. gr. stjórnarskrárinnar og 14. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þessi mismunandi meðferð er sérstaklega ámælisverð þegar haft er í huga að málið snýst um æru, mannorð og réttlæti einstaklings sem hefur þegar afplánað fangelsisvist vegna málsins.“
Þá verði þessi niðurstaða ekki auðveldlega samræmd vilja Alþingis. Þegar lög um Endurupptökudóm voru sett árið 2020 hafi meirihluti þingnefndar skrifað eftirfarandi:
„Ef gerð er sátt vegna þess að fyrir liggur dómur í sambærilegu máli getur sá dómur verið grundvöllur fyrir beiðni um endurupptöku.“
Ekkert mál geti verið sambærilegra en mál sem dæmt var í sama dómi, fyrir sömu háttsemi samkvæmt sama ákæruskjali og eftir sömu málsmeðferð. Endurupptökudómur hafi ekki sérstaklega vikið að þessu atriði en hafi bent á að aðstaðan væri „ólík“. Að lýsa ólíkri meðferð sé hins vegar ekki það sama og að rökstyðja hana.
Vísað til þrískiptingarinnar
Loks segir Halldór Karl að í febrúar 2026 hafi Guðmundur beðið um að ríkið gerði við hann sams konar sátt og gerð var við hina þrjá, að viðurkennt yrði að brotið hefði verið gegn rétti hans til réttlátrar málsmeðferðar.
„Ríkislögmaður neitaði og vísaði til þrískiptingar ríkisvaldsins. Sama embætti taldi það þó ekki fyrirstöðu árið 2020, þegar sami dómur lá fyrir. Í bréfi ríkislögmanns er ekki tekin afstaða til jafnræðisreglunnar. Endurupptökudómur vísar til þess að ríkið hafi ekki viðurkennt brotið, og ríkið vísar á úrskurð Endurupptökudóms. Guðmundur ítrekaði beiðnina í júní og sendi dómsmálaráðuneytinu afrit. Síðan hefur ekkert svar borist.“
Það sé óviðunandi að sami dómur hafi verið felldur úr gildi gagnvart sumum sakborningum en standi gagnvart Guðmundi. Enginn biðji dómsmálaráðherra að dæma í málinu eða segja dómurum fyrir verkum. Mismunurinn á stöðu sakborninganna stafi hins vegar af ákvörðun framkvæmdavaldsins um að gera sátt við suma en ekki aðra. Því beri framkvæmdavaldinu að taka afstöðu til þess hvort sú mismunun fái staðist. Ráðherra geti tryggt að ríkið veiti Guðmundi sömu viðurkenningu og meðákærðu í málinu fengu árið 2020. Það sé ákvörðun framkvæmdavaldsins sjálfs, og hún myndi gera dómstólum kleift að fara með mál hans eins og mál hinna.
„Það á ekki að ráðast af því hvort maður hafði þrek og fé til að fara til Mannréttindadómstóls Evrópu í Strassborg hvort hann teljist sekur eða saklaus á Íslandi. Ríkið hefur viðurkennt brotið. Það á hins vegar eftir að axla ábyrgð gagnvart öllum sem urðu fyrir því. Ég trúi ekki öðru en að það verði gert.“