Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, gerði samning utanríkisráðuneytisins við Nebraska, fyrirtæki Heiðu Kristínar Helgadóttur og eiginmanns hennar, að umræðuefni í störfum þingsins. Ræðan fór öfugt ofan í þingmenn meirihlutans sem sökuðu varaformanninn um lágkúru.
Jens Garðar sagði að leiða mætti líkur að því að verktakasamningur við Nebraska, þar sem Heiða Kristín tók að sér að veita utanríkisráðherra ráðgjöf í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB í sumar, hefði verið gerður til að komast hjá því að launagreiðslurnar færu upp í útistandandi opinber gjöld. Vísaði hann í frétt Morgunblaðsins þar sem fullyrt var að eigendur Nebraska skulduðu opinber gjöld.
Sagði Jens Garðar að með því að ráða verktaka til að sinna pólitískum störfum og ekki hafi enn fengist svör við því á hvaða lagagrundvelli samningurinn var gerður. „Utanríkisráðherra segist hafa farið eftir öllum reglum. Það sjá það allir sem vita að svo er ekki. Umboðsmaður Alþingis hefur hafið frumkvæðisrannsókn af minna tilefni.“
Þessi orð fóru illa í þingmenn meirihlutans sem komu upp í röðum til að skamma Jens Garðar fyrir að dylgja um fólk úti í bæ. „Mér finnst það ekki við hæfi og ekki þinginu eða þingmönnum sæmandi,“ sagði Pawel Bartoszek, þingflokksformaður Viðreisnar, sem reið á vaðið.
Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, fylgdi á eftir. „Á hvaða vegferð er Sjálfstæðisflokkurinn? Á hvaða vegferð er Sjálfstæðisflokkurinn sem á að standa vörð um frelsi einstaklinga því að hann kemur hér upp í ræðustól og dylgjar um þegna þessa lands úti í bæ sem geta ekki varið sig?“
Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingflokksformaður Flokks fólksins, rifjaði upp að þingmenn meirihlutans hafi gert mikið úr því þegar fjallað var um embættisverk Sigurðar Inga Jóhannssonar á dögunum, á sama tíma og hann var staddur erlendis. „Hvað er þá þetta? […] Þetta nær engri átt. Þetta er fyrir neðan allt velsæmi og ég hefði ekki getað trúað því að þingmenn gætu lagst svona lágt.“