Læknafélag Íslands kvartaði til umboðsmanns Alþingis eftir að hjartaskurðlæknirinn Tómas Guðbjartsson var áminntur í starfi og vinnuframlag hans afþakkað. Niðurstaða umboðsmanns er að stjórnsýslulög voru þverbrotin við meðferð málsins og að meðalhófs hafi ekki verið gætt við áminningu.
Tómas var áminntur fyrir myndatöku á spítalanum og fyrir að hafa birt mynd úr skurðaðgerð á Facebook-síðu sinni.
Formaður Læknafélags Íslands hefur hvatt Landspítala til þess að draga ólögmæta áminningu Tómasar til baka og samkvæmt upplýsingum fréttastofu er til skoðunar hvort það þurfi formlega að koma til þess, eða hvort hún teljist einfaldlega ógild í ljósi álitsins.
Landspítali hefur boðað fulltrúa Læknafélags Íslands og Tómas á fund þar sem álitið verður rætt. Í áliti umboðsmanns er því beint til spítalans að rétta hlut Tómasar óski hann eftir því.
Fréttastofa sendi Landspítala fyrirspurn þar sem óskað var eftir viðbrögðum við málinu og spurt hvort verklagsreglur um hljóð- og myndtökur á spítalanum verði teknar til endurskoðunar. Umboðsmaður lagði það til þar sem núgildandi fortakslaust bann við myndatöku í svokölluðum klínískum rýmum gæti gengið of nærri tjáningarfrelsi starfsmanna.
Svar Landspítalans er stutt en þar segir: „Landspítali tekur áliti umboðsmanns Alþings alvarlega og er nú með það til ítarlegrar skoðunar.“