Um 1.500 sjúklingum sem sótt hafa tannlæknastofu í sænsku borginni Växjö í haust hefur verið boðið að gangast undir sýnatöku til að kanna hvort þeir hafi smitast af HIV eða lifrarbólgu B eða C.Í ljós hefur komið að tannlæknatæki á stofunni voru í nokkur skipti ekki sótthreinsuð með fullnægjandi hætti.Sænska blaðið Aftonbladet greinir frá þessu og vísar í fréttatilkynningu frá heilbrigðisyfirvöldum í Kronoberg-héraði.
Alvarleg mistök á sænskri tannlæknastofu - 1.500 sjúklingum boðið í HIV-próf