Frederiksen talaði um „mikil útskipti þjóðar“ í hlaðvarpsviðtali þar sem hún lagði áherslu á mikilvægi þess að menning danskra „frumbyggja“ yrði áfram ráðandi í Danmörku.
Þótti mörgum ummælin bera sterkan keim af „útskiptunum miklu“, rasískri samsæriskenningu sem er útbreidd á meðal evrópska fjarhægrimanna um að vestrænar elítur vinni markvisst að því að skipta hvítum innfæddum íbúum Evrópulanda út fyrir þeldökka innflytjendur, oftast múslima.
Samstarfsflokkar Jafnaðarmannaflokks Frederiksen á Evrópuþinginu eru ósáttir við orð hennar og fóru í gær fram á umræður um þær, að sögn evrópska blaðsins Politico.
Erfitt að halda áfram stuðningi við stjórnina
Gagnrýnin nær nú inn í innstu raðir forsætisráðherrans. Ingrid Kjærgaard, formaður ungliðahreyfingar flokksins, sagði flokksleiðtoga sinn hafa þvælt umræðu um innflytjendamál með ummælum sínum.
„Þau færa fjarhægrisamsæriskenningu inn í danska umræðu um innflytjendamál sem ætti ekki að koma neins staðar nærri henni,“ sagði Kjærgaard í dag.
Franciska Rosenkilde, leiðtogi Alternative sem ver minnihlutastjórn Frederiksen falli, varaði forsætisráðherrann við að halda áfram á sömu nótum.
„Ef forsætisráðherrann kýs að nota þessi fjarhægrihugtök og halda áfram niður þann veg verður það mjög, mjög erfitt fyrir okkur að líta á okkur sem stuðningsflokk [ríkisstjórnarinnar],“ sagði Rosenkilde.
Frederiken neitaði að svara spurningum fjölmiðla í dag um hvort hún myndi nota hugtakið aftur í ljósi gagnrýninnar. Hún sagðist ekki láta neinn draga sig í dilka þó að hún styddi harða innflytjendastefnu.
„Það verður að vera sterkur menningarlegur meirihluti. Við sættum okkur við afleiðingar þess fyrir löngu. Meirihluti Dana aðhyllist stranga innflytjendastefnu,“ sagði Frederiksen.
Þá vísaði hún á bug gagnrýni Tarjei Jensen Bech frá norska Verkamannaflokkinum sem birtist í danska blaðinu Politiken. Bech lifði af hryðjuverkaárás hægriöfgamannsins Anders Behring Breivik á Útey árið 2011 en hugmyndin um útskiptin miklu kom skýrt fram í stefnuyfirlýsingu hans.
„Forsenda hennar er að ég tilheyri hópi sem ég geri ekki. Aðrir geta ekki notfært sér mig í eigin skyni,“ sagði Frederiksen.