Kanadíska djasssöngkonan og píanóleikarinn Diana Krall heldur tónleika í Eldborgarsal Hörpu mánudaginn 13. september á næsta ári. Tónleikarnir marka upphaf umfangsmikillar tónleikaferðar hennar um Evrópu og Bretland.Í tilkynningu kemur fram að Krall sé ein þekktasta djasssöngkona heims og hafi á áratugalöngum ferli sínum unnið með mörgum af stærstu nöfnum tónlistarheimsins, þar á meðal Paul McCartney, Barbra Streisand og Tony Bennett.
Ísland fyrsti viðkomustaður Diönu Krall í stórri tónleikaferð