Ulf Kristersson, leiðtogi Moderatarna í Svíþjóð, hefur haft umboð til stjórnarmyndunar frá 3. nóvember. Í dag sagðist hann tilbúinn í að láta þingið greiða atkvæði um sig sem forsætisráðherra. Andreas Norlén, forseti sænska þingsins, tilkynnti rétt í þessu að hann ætli að leggja tillögu um Kristersson sem forsætisráðherra fyrir sænska þingið á mánudag.
Norlén tilkynnti þetta á blaðamannafundi eftir að hafa átt samtöl við leiðtoga allra flokka á þingi í dag. Það eru 72 dagar frá því að kosið var í Svíþjóð en kosningarnar voru haldnar 13. september. Átta flokkar náðu inn á þing, hér eru þeir ásamt nöfnum leiðtoga:
- Jafnaðarmenn (Magdalena Andersson)
- Moderaterna (Ulf Kristersson)
- Svíþjóðardemókratar (Jimmie Åkesson)
- Vinstriflokkurinn (Nooshi Dadgostar)
- Miðflokkurinn (Elisabeth Thand Ringqvist)
- Græningjar (Amanda Lind og Daniel Helldén)
- Kristilegir demókratar (Ebba Busch)
- Frjálslyndi flokkurinn (Simona Mohamsson)
Flokkakerfið í Svíþjóð er keimlíkt því sem þekkist víðar á Norðurlöndum; þar hafa Sósíaldemókratar yfirleitt notið mests fylgis og stærsti hægri flokkurinn aðeins minna. Flokkarnir skipa sér svo í lið með þessum stærstu flokkum. Í Svíþjóð eru það Jafnaðarflokkur Magdalenu Andersen og Moderaterna flokkur Ulf Kristersson.
Rauðgræna blokkin, sem samanstendur af fjórum vinstri- og miðjuflokkum; Jafnaðarmannaflokknum, Miðflokknum, Vinstri og Græningjum; tryggði sér nauman meirihluta á þingi í kosningunum gegn borgaralegu blokkinni og sitjandi ríkisstjórn.
Miðflokkurinn í lykilstöðu
Miðflokkurinn sagðist margsinnis í kosningabaráttunni útiloka að sitja í ríkisstjórn með Vinstriflokknum og Svíþjóðardemókrötum, flokkunum sem eru lengst til vinstri og lengst til hægri.
Miðflokkurinn skilgreinir sig sem miðjuflokk og lítur á þessa tvo flokka sem öfgaflokka. Hann tilheyrði áður borgaralegu blokkinni en sleit sig frá henni vegna andstöðu við Svíþjóðardemókrata sem studdu síðustu ríkisstjórn, Tidö-stjórnina undir forystu Kristersson.
En í dag vildi Elisabeth Thand Ringqvist, leiðtogi Miðflokksins, ekki útiloka samstarf með Svíþjóðademókrötum.
Hvað hefur gerst hingað til?
Frá kosningum er tímalínan svona:
13. september: Gengið til kosninga.
18. september: Norlén þingforseti veitir Andersson umboð.
28. september: Andersson skilar umboðinu.
2. október: Eftir viðræður Norlén við alla leiðtoga fékk Andersson umboðið aftur.
15. október: Anderson lagði til eins flokks minnhlutastjórn, hún var felld með 248 atkævðum gegn 99.
19. október: Norlén felur Ringqvist umboð til að kanna möguleika á stjórn.
26. október: Ringqvist skilar umboðinu.
3. nóvember: Þingið greiðir samt sem áður atkvæði um Ringqvist sem forsætisráðherra. Norlén setur hana sjálfur fram og hún er felld með 324 atkævðum gegn 25.
3. nóvember: Kristersson fær umboðið.
17 nóvember: Kristersson biður um að gert verði vikuhlé á ferlinu.
24. nóvember: Kristersson segist geta myndað stjórn.