Skáldsagan Dyngja (e. Boudoir) eftir Sigrúnu Pálsdóttur er meðal verka sem hafa hlotið tilnefningu til Dublin-bókmenntaverðlaunanna 2027. Níutíu bókasöfn víðs vegar um heim standa að tilnefningunum, þar á meðal Borgarbókasafn Reykjavíkur.Dyngja kom út á íslensku árið 2021 og hlaut afar góðar viðtökur. Hún var meðal annars tilnefnd til Fjöruverðlaunanna sama ár og kom út í enskri þýðingu Lyttons Smith vorið 2026.
Sigrún tilnefnd til Dublin-bókmenntaverðlaunanna