Rannsóknin er samkvæmt stuttri tilkynningu í ríkismiðlum Kína sögð snúa að meintum alvarlegum brotum hans á agareglum Kommúnistaflokksins og kínverskum lögum en það orðalag hefur áður verið notað þegar embættismenn hafa verið sakaðir um spillingu.
Xi Jinping, forseti, hefur ítrekað kallað eftir meiri aga embættismanna og hefur staðið í umfangsmiklum hreinsunum á undanförnum árum.
Fjölmargir embættismenn og þar á milli mjög hátt settir embættismenn hafa verið sakaðir um spillingu og þeim sópað úr flokknum og jafnvel fangelsaðir. Samkvæmt AP-fréttaveitunni eru hreinsanirnar á skala sem hefur ekki sést frá stjórnartíð Maos Zedong.
Sérfræðingur í málefnum Kína sem ræddi við fréttaveituna segir að Chen sé fjórði meðlimur miðstjórnar Kommúnistaflokksins sem er sópað þaðan út á þessu kjörtímabili. Slíkt eigi sér ekkert fordæmi.
Hreinsanirnar hafa einnig náð til hæst settu herforingja Kína, sem Xi hefur sópað flestum á brott. Í byrjun ársins stóð bara einn herforingi eftir í sjö manna miðstjórn kínverska hersins, sem stýrt er af Xi. Þar að auki höfðu fjölmargir lægra settir herforingjar og aðmírálar verið reknir eða virtust hreinlega horfnir.
Með þessum hreinsunum hefur Xi tryggt sér nánast ótakmörkuð völd í Kína. Hann er 73 ára gamall og er líklegur til að sækjast eftir fjórða kjörtímabili sínu sem forseti Kína á næsta ári.
Chen er, eins og áður segir, flokksritari Kommúnistaflokksins í Sjanghæ, sem hefur lengi verið áhrifamikið embætti og hefur verið stökkpallur hærra upp í stjórnkerfi Kommúnistaflokksins. Li Qiang, núverandi forsætisráðherra Kína, var í embættinu á undan Chen.
Xi Jinping var í sama embætti frá mars 2007 til október á sama ári.