Öflug og heildstæð þekkingarstofnun er sögð markmið sameiningar Náttúruminjasafns Íslands og Náttúrufræðistofnunar en bág fjárhagsstaða safnsins virðist þungamiðja röksemdanna. Ragnhildur Guðmundsdóttir forstöðumaður safnsins telur að sameining styrki starf safnsins og geti þétt raðir náttúrufræðinga.
„Við þurfum líka að vera með smá krítískan massa í náttúruverndinni og einhvern veginn á þessum voveiflegu tímum loftslagsbreytinga og hruns líffræðilegrar fjölbreytni og svoleiðis.“
Náttúran þurfi öflugan málsvara og sameining sé mikilvægur liður í því. Með sameiningunni sé horfið aftur til sömu stöðu og var fyrir aðskilnað fyrir tuttugu árum. Grundvallaratriði sé að safnið komist í nýtt safnahús sem stendur tilbúið á Seltjarnarnesi og til stendur að opna grunnsýningu á næsta ári.
„Við þurfum svo líka að geta opnað sýningu til að geta hafið fræðslu á þessum málum. Eins og þetta er lagt upp núna er mikilvægt að ná ákveðnum samlegðaráhrifum. Það er mjög sterkur fræðilegur bakgrunnur hjá stofnuninni sem getur bakkað okkur upp.“ Sé hægt að fullgera þá hugmynd sé sameining leiðin áfram.
Ragnhildur áréttar að samkvæmt lögum frá 2007 og 2011 eigi að vera til þrjú höfuðsöfn í landinu – fyrir listir, þjóðminjar og náttúruna. Ragnhildi finnst náttúrusafnið hafa setið á hakanum. „Það hefur verið eins og einhver innri tregða í kerfinu í uppbyggingu á þessu safni.“
Ákveðið stökk hafi verið tekið 2018 þegar sýningin Vatnið í náttúru Íslands var opnuð í Perlunni. Þar er starfsstöð og tekið á móti skólahópum, enda eina húsnæðið fyrir náttúrusýningu.
„Bara það að komast í húsið og opna sýningu og hefja þannig starfsemina. Aðaltakmarkið er að opna grunnsýningu hvað sem sameiningu líður,“ segir Ragnhildur Guðmundsdóttir.
Hún telur þá Jóhann Pál Jóhannsson og Loga Einarsson, ráðherra umhverfis- og menningarmála, hafa verið afgerandi með yfirlýsingum í sumar um að tryggja framtíð safnsins.
„Við erum líka að horfa á að þetta er svona 130 ára saga sem verið er að fullgera og klára með því að Náttúruminjasafnið eignist eigið húsnæði með sýningaraðstöðu.“ Hún rifjar upp að markmið með stofnun Náttúrufræðifélags seint á 19. öld hafi verið að opna náttúruminjasafn. Það hafi gengið upp og ofan.
Margir muni eftir sýningu á Hlemmi á vegum Náttúrufræðistofnunar. „Svo gerist það með lagabreytingu árið 2007 að Náttúruminjasafnið verður til sem sérstofnun sem var skipt upp frá Náttúrufræðistofnun. Þá var miðlunarþættinum skipt frá.
„Þannig að núna er stigið ákveðið stig til að loka hringnum,“ segir Ragnhildur. Þegar Náttúruminjasafnið var stofnað er eins og hugmyndin hafi ekki verið fullmótuð.
Nú sé komið vilyrði frá tveimur ráðherrum en á næstu árum er gert ráð fyrir óbreyttum fjárframlögum samkvæmt fjárhagsáætlun. Það valdi áhyggjum enda dugi 161 milljón, sem er á fjárlögum næsta árs, skammt.
„Leigan á nýja húsinu er 100 milljónir á ári, svo þarf að reka batteríið, borga fyrir þrif og þess háttar. Þá er ekki mikið eftir til þess að reka starfsemi í húsinu. Það er stressið í þessu enda gefur auga leið að við þurfum á sérhæfðu safnastarfsfólki að halda. Fólkið sem starfar hér núna veit hvernig á að reka höfuðsafn,“ segir Ragnhildur Guðmundsdóttir.