Götublaðið The Sun greindi frá innbrotinu sem átti sér stað í gærkvöldi og greindi fjölmiðillinn jafnframt frá því að tveir menn hefur verið handteknir í kjölfar lögreglurannsóknar.
„Tveir menn hafa verið handteknir grunaðir um innbrot eftir atvik sem átti sér stað á Sandringham-sveitasetrinu í gærkvöldi,“ sagði lögreglan í Norfolk í tilkynningu til fjölmiðla.
Hundar, drónar og þyrla kölluð út
Lögreglunni hafði borist tilkynningu rétt fyrir klukkan sex síðdegis að staðartíma í gær eftir að sjónarvitni hafði orðið vart við grunsamlegar mannaferðir á staðnum.
„Lögregluþjónar mættu á vettvang og sérfræðiúrræði, þar á meðal lögregluhundar, drónar og þyrla ríkislögreglunnar, voru notuð til að aðstoða við leit á svæðinu,“ sagði í tilkynningu lögreglunnar.
Tveir menn voru í kjölfarið handteknir á svæðinu grunaðir um innbrot og að vera í leyfisleysi á svæðinu. Þeir eru enn í gæsluvarðhaldi og er málið áfram til rannsóknar.
Samkvæmt heimildum The Sun var fimm manna fjölskyldan stödd á heimili sínu, Forest Lodge, í Windsor þegar innbrotið átti sér stað.
Hjónin fengu Sandringham-sveitasetrið í brúðkaupsgjöf frá Elísabetu Bretadrottningu árið 2011 og bjuggu þar á árunum 2015 til 2017. Fjölskyldan flutti til Lundúna eftir að Georg prins byrjaði í grunnskóla og bjuggu í Kensington-höll til 2022 þegar þau fluttu til Windsor.
Fjölskyldan ver reglulega fríum sínum á sveitasetrinu og dvaldi Katrín jafnframt þar á meðan hún háði baráttu sína við krabbamein.